Beint į leišarkerfi vefsins

7 algengar spurningar um trśmįl

Vegurinn, boðar til námskeiðs undir yfirskriftinni Heitu málin.  Žar eru tekin til umfjöllunar sjö algengar spurningarnar eða málefni, sem algengt er að hinir kristnu fá að heyra í hinu daglega lífi.  Meðal fyrirlesara eru m.a. Högni Valsson, Gunnar Þorsteinsson, Snorri Óskarssaon og Sr. Þórhallur Heimisson. Sjá vefsíðu Vegarins hér

Námskeiðið stendur í sjö vikur og hefst miðvikudaginn 10. febrúar, kl. 20.

Heitu málefnin sjö eru þessi:

         Þjáningin í heiminum - Högni Valsson
         Önnur trúarbrögð - Þórhallur Heimisson
         Kynlíf fyrir hjónaband - Halldór Lárusson
         Nýöldin - Friðrik Schram
         Samkynhneigð - Guðmundur Barker
         Vísindi & trú - Snorri Óskarsson
         Heilög þrenning - Gunnar Þorsteinsson- Halldór Lárusson

Heyrum við ekki oft spurningar eins og "Af hverju er þjáning í heiminum?", "Ef Guð er til, af hverju leyfir hann þá þúsundum barna að deyja úr hungri á hverju ári?", "Og öll þessi trúarbrögð, er ekki bara verið að tilbiðja einn og sama guðinn?", "Eru athafnir þeirra sem kenna sig við Nýöldina ekki bara saklausar og í raun af hinu góða?" og "Af hverju er frjálsu kirkjurnar svona mikið á móti hommum og lesbíum?". 

Žessar spurningar eru spurðar ... og við þurfum að svara þeim. En hvernig gerum við það þegar á hólminn er komið?  Erum við nægilega undirbúin?  Höfum við þekkinguna á Orði Guðs?  Munum við eftir versunum?  Það er ekki sama hvernig við svörum. Við þurfum þjálfun í að svara þeim svo vel sé.  Það er skylda okkar og ábyrgð.  Við þurfum að þjálfa okkur sem trúboða og erindreka Guðs, úti á akrinum.

Vegurinn, kirkja fyrir þig, boðar til námskeiðs um ofangreind atriði, sem brenna á vörum fólks í þjóðfélaginu.  Við höfum ákveðið að kalla námskeiðið "Heitu málin!".  Námskeiðið byggist upp á 50 mín fyrirlestri, 15 mín kaffihléi og síðan umræðum í litlum hópum í aðrar 50 mín. Samtals 2 klukkustundir.  Farið er fram á virka þátttöku þeirra sem námskeiðið sækja.

    Hefst:       Miðvikudaginn. 10. feb. og lýkur miðvikudaginn. 24. mars (7 vikur)
    Staður:     Vegurinn, Smiðjuvegi 5, Kópavogi
    Tími:         kl. 20:00 - 22:00
    Verð:        Frítt, en óskað er eftir frjálsum framlögum
                    fyrir kaffimeðlæti og virkri þátttöku í hópunum
    Skráning:  í síma 564-2355 eða á vegurinn@vegurinn.is

Námskeiðið er öllum opið og ŽÚ...ert hjartanlega velkomin(n)


Póstlisti

Auglżsingar

hjalpast_kirkjunnar

Auglżsingar

Kristilegt Félagsstarf
foglander_logo 
gralina


Toppmynd

antíkbudin

Stjórnborš

Stęrra letur Minna letur Veftré Hafa samband RSS 2.0 straumar Hamur fyrir sjónskerta