Beint á leiðarkerfi vefsins

Foglander kristleg Útivist

Foglander er útivistar- og trúboðshópur sem starfar á kristilegum grunni. Hann er opinn öllum sem áhuga hafa á útiveru og njóta vilja sköpunarverks Guðs. Markmið hans er tvíþætt. Annars vegar að stuðla að útivist og félagslífi af ýmsum toga og hins vegar að stunda trúboð eftir þeim leiðum sem henta þykja hverju sinni. Foglander er þverkirkjulegur hópur sem nýtur þess uppbyggilega og jákvæða sem lífið hefur upp á að bjóða.

Dagskrá sumarið 2009

Næsta ferð: Fimmvörðuháls í júlímánuði. Ferðin verður auglýst hér síðar.

Tilgangur Foglander

  • Tilgangur Foglander er að styðja samfélag kristinna, innan sem utan veggja kirkjunnar. Skapa vettvang fyrir andlega leitandi einstaklinga að hittast, njóta íslenskrar náttúru og skiptast á skoðunum.
  • Trúboð og skipulagðar trúboðsferðir.
  • Fjölskylduvænt starf og starf fyrir sjálfstæða einstaklinga.
  • Starf hópsins miðar ekki að fjárhagslegum hagnaði. Forsvarsmenn hópsins taka ekki laun fyrir sína vinnu og kostnaði er haldið í lágmarki. Verðlagning ferða miðar að því að ná aðeins inn fyrir útlögðum kostnaði.
  • Ekkert árgjald eða félagsgjald er í Foglander og engin skuldbinding um þátttöku í ferðir þó menn séu skráðir á netfangalista.
  • Slagorð Foglander er „Kristileg útivist".
  • Kjörorðin hópsins eru: "Trúin flytur fjöll en við göngum á þeim líka".

Skipulag og skráning

  • Boðað er til ferða með tölvupósti og SMS-skilaboðum, stundum með aðeins 1-2 daga fyrirvara. Oft er farið í ferðir á laugardögum og er þá tilgreindur tími og staður þar sem menn hittast í upphafi ferðar.
  • Bænastundir eru í sérhverri ferð hópsins.
  • Reynt að láta ferðir ekki skarast við kirkjustarf. Þátttakendum er frjálst að koma með tillögur að ferðum og félagsstarfi.
  • Hópurinn er opinn öllum. Hann er fyrir frelsað og ófrelsaða; kristna sem trúleysingja. Nýir áhugasamir einstaklingar eru sérstaklega velkomnir í ferðir hópsins.
  • Nýir aðilar skrá sig með því að senda nafn og netfang/farsíma á foglander@gmail.com. Þátttakendur fá í kjölfarið sendar tilkynningar um ferðir með tölvupósti og SMS-skilaboðum. Hægt er að skrá sig af netfangalista hópsins hvenær sem er með því að senda beiðni þar um á ofangreint netfang.

Forsvarsmenn hópsins:

Hafsteinn G. Einarsson, 893-9702 (Vegurinn)

Finnbogi Björnsson, 661-2372 (Hvítasunnukirkjan Fíladelfía)

Foglander var stofnaður laugardaginn 28. apríl 2001, nánar tiltekið í heimahúsi við Laugarnesveginn. Viku síðar, í fyrstu ferð hópsins, gönguferð á Hengil, laugardaginn 5. maí, voru þátttakendur fjórir; þau Finnbogi, Ásrún, Bryndís og Hafsteinn.

Um okkur

Hvert er markmið okkar?

Gönguleiðir

Hér kemur texti

Almennt


Póstlisti

Auglýsingar

Abc

Auglýsingar

Kristilegt Félagsstarf
foglander_logo 
gralina


Toppmynd

antíkbudin

Stjórnborð

Stærra letur Minna letur Veftré Hafa samband RSS 2.0 straumar Hamur fyrir sjónskerta