Beint á leiðarkerfi vefsins

Bænastund við Austurvöll

n3

Sameiginleg bænastund fór fram við Austuvöll í dag kl: 12:30 þar sem saman voru komnir hátt í hundrað mans sem báðu fyrir landi og þjóð og blessuðu bæði breta og hollendinga með slagorðinu blessum en bölvum ekki.

Hópurinn hefur hist í hádeginu á miðvikudögum í Friðrikskapellu í rúmlega eitt og hálft ár til að biðja fyrir íslensku þjóðinni, velferð hennar og lausn á margvíslegum vanda. Bænastundirnar hófust tveimur mánuðum fyrir hrun og hafa haldið áfram síðan.

 n4 n1 n2 n5

Lesið var upp úr Orði Guðs  

María las;

14Þér eruð ljós heimsins. Borg, sem á fjalli stendur, fær ekki dulist. 15Ekki kveikja menn heldur ljós og setja undir mæliker heldur á ljósastiku og þá lýsir það öllum í húsinu. 16Þannig lýsi ljós yðar meðal mannanna að þeir sjái góð verk yðar og vegsami föður yðar sem er á himnum (Matt. 5,14-16).

Friðrik las;

Þér hafið heyrt að sagt var: Þú skalt elska náunga þinn og hata óvin þinn. En ég segi yður: Elskið óvini yðar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja yður. Þannig sýnið þér að þér eruð börn föður yðar á himnum er lætur sól sína renna upp yfir vonda sem góða og rigna yfir réttláta sem rangláta. ... Verið því fullkomin eins og faðir yðar himneskur er fullkominn. (Matt. 5,43-48)

14Og eins og þér viljið að aðrir menn geri við yður, svo skuluð þér og þeim gera. ... Verið miskunnsöm eins og faðir yðar er miskunnsamur (Lúk. 6,27).

Eric las;

1Sökum Síonar get ég ekki þagað og vegna Jerúsalem ekki verið hljóður fyrr en réttlæti hennar brýst fram eins og ljómi og hjálpræði hennar logar sem kyndill. 2Þjóðirnar munu sjá réttlæti þitt
og allir konungar dýrð þína, þér verður gefið nýtt nafn sem munnur Drottins ákveður. 3Þú verður vegleg kóróna í hendi Drottins
og konunglegt höfuðdjásn í hendi Guðs þíns. 4Þú munt ekki framar nefnd verða Yfirgefin og land þitt nefnt Auðn, heldur verður þú nefnd Yndi mitt og land þitt Eiginkona því að Drottinn ann þér og land þitt mun honum gefið.

...Þér, sem eigið að minna Drottin á, unnið yður engrar hvíldar (Jes. 62,1-4).

Högni las;

Land, land, land, heyr orð Drottins (Jeremía 22,29).

Statt upp, skín þú, því að ljós þitt kemur og dýrð Drottins rennur upp yfir þér. Myrkur grúfir yfir jörðinni og sorti yfir þjóðunum en Drottinn er runninn upp yfir þér og dýrð hans birtist yfir þér (Jes. 60,1-2).

Vörður las;

[Ef] þjóð mín, sem nafn mitt hefur verið hrópað yfir, auðmýkir sig, biður, leitar auglits míns og lætur af illri breytni sinni, mun ég heyra á himninum, fyrirgefa synd hennar og græða upp land hennar. Héðan í frá munu augu mín vera opin og eyru mín munu hlusta á bænir á þessum stað (2. Kron. 7,14-15).

Edda Swan las;

Því að enginn er Guð nema ég, réttlátur Guð og frelsari er enginn nema ég. 22Hverfið aftur til mín og látið frelsast, gjörvöll endimörk jarðar, því að ég er Guð og enginn annar (Jes. 45, 21-22).


Kjartan

Drottinn blessi þig og varðveiti þig,
Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig og sé þér náðugur,
Drottinn upplyfti sínu augliti yfir þig og gefi þér frið. (4. Mós.)

Faðirvor, allir saman

Faðir vor, þú, sem ert á himnum. 
Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, 
verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni. 
Gef oss í dag vort daglegt brauð. 
Og fyrirgef oss vorar skuldir, 
svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum. 
Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu. 
Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin 
að eilífu. Amen.

Þjóðsöngurinn

Ó, guð vors lands! Ó, lands vors guð!
Vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn!
Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans
þínir herskarar, tímanna safn.
Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár
og þúsund ár dagur, ei meir:
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,
sem tilbiður guð sinn og deyr.
:/: Íslands þúsund ár, :/:
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,
sem tilbiður guð sinn og deyr.

Hægt er að sjá fleiri myndir hér


Póstlisti

Auglýsingar

hjalpast_kirkjunnar

Auglýsingar

Kristilegt Félagsstarf
foglander_logo 
gralina


Toppmynd

antíkbudin

Stjórnborð

Stærra letur Minna letur Veftré Hafa samband RSS 2.0 straumar Hamur fyrir sjónskerta