Hjónadagur - Takið daginn frá
Hjóna dagur verður haldin í CTF, Reykjavík þann 27. mars n.k. Mótið ber yfirskriftina "From Roots to Fruits". Ræðumenn mótsins verða Paul og Heidi Hughes. Paul og Heidi eru einstaklega samheldin forstöðuhjón frá Kanada. Þau eiga 3 syni og hafa verið gift í 25 ár. Með Paul og Heidi koma 3 tónlistarmenn sem munu leiða lofgjörð á mótinu.
Mótsgjald er kr 3,900 á mann og er hádegis- og kvöldmatur innifalinn í verðinu.
Dagskrá
Digging in the Dirt:
From Roots to Fruits
Grafið í drullunni:
Frá rót til ávaxtar.
Við byrjum kl 10:00 á Laugardagsmorgninum.
Taktu daginn frá og eigðu góðan dag með maka þínum!
Skráning á ctf@ctf.is eða í síma 5113377
--------------------------------------------------------------------
Þjónað til hjóna : Paul og Heidi verða með 2 klukkustundar Innri lækningar viðtöl og fyrirbæn fyrir hjón á Fimmtudeginum. Föstudeginum. Mánudeginum og Þriðjudeginum.
Kl. 10:00-12:00. 13:00-15:00. 15:00-17:00. alla dagana.
Áhugasamir panti tíma í síma 5113377.
--------------------------------------------------------------------
Paul and Heidi Hughes elska Jesú og gefið Guði líf sitt algerlega. Þau kenna orð Guðs í krafti Heilags Anda ásamt því að þjóna í lofgjörð og hinu spámannlega.
Paul er með doktorsgráðu í Hebresku og Gamlatestamenntis fræðum frá University of Edinburgh í Skotlandi og Heidi lauk BA námi í Biblíu fræðum frá Providence College. Þó svo þau byggi á traustum Biblíulegum grunni reiða þau sig ekki eingöngu á fræðilega túlkun Biblíunnar heldur leitast eftir að hafa jafnvægi milli Orðsins og Andans þegar þau kenna.
Heidi er listamaður og hún elskar að leifa Heilögum Anda að leiða sig þegar hún málar.
Paul og Heidi eru forstöðumenn í kirkju sem heitir The River í Langley, í British Columbia, Kanada, og þjónar kirkjan aðallega til ungs fólks á háskóla aldri. Þau hafa einstaka opinberun á andlega einingu í hjónabandi. Þau eiga þrjá uppkomna syni, tvær tengdadætur, tvo hunda og einn sonarson. Þann 4. maí, 2010, munu þau fagna 25. brúðkaupsafmæli sínu.
Paul og Heidi eru vænandi fyrir allar þær samkomur sem þau koma að, fjölmennar sem og fámennar, og trúa að Guð komi og snerti við fólkinu sínu með nærveru sinni, svo að líf munu breytast og Konungsríkið breiðast út.
Toppmynd






