Fyrirtæki

Reikningshald og Skattskil ehf.
Reikningshald, bókhald og endurskoðun; skattaráðÁrmúla 36 (selmúlamegin 3. hæð) 108 Reykjavík5519100
Láttu okkur sjá um reikningshaldið þitt
Reikningshald og skattskil getur séð um alla þætti reikningshald þíns, allt eftir óskum og þörfum hvers og eins viðskiptamanns. Við leggjum áherslu á trausta og persónulega þjónustu á sanngjörnu verði. Við þjónustum allt er varðar:
- Fjárhagsbókhald
- Afstemningar
- Launavinnslu
- Gerð lögbundna skilagreina
- Ársreikninga og milliuppgjör
- Skattframtöl
- Áætlanagerð
- Stofnun félaga.
- Samrunar félaga
- Og margt fleira!
Við önnumst þessa þjónustu hvort sem þú er einstaklingur með rekstur, fyrirtæki eða félag, stórt eða smátt.
Þjónusta okkar er ekki bundinn við eitt tiltekið viðskipta- og bókhaldskerfi. Þú getur valið úr næstum því öllum helstu kerfum sem innleidd hafa verið hjá íslenskum fyrirtækjum.
Viðskiptavinir okkar geta líka valið milli þess að starfsmenn hjá Reikningshald og skattskil hafi aðgang gegnum nettengingu við bókhaldskerfi þeirra, eða hvort Reikningshald og skattskil útvegi viðskiptavinum sínum aðgang gegnum nettengingu við bókhaldkerfi okkar.
Reikningshald & Skattskil ehf • Ármúli 36 • 108 Reykjavík • Sími 551 9100
Verkefni
Stofnun félaga
Ef þú vil stofna félag, getur Reikningshald og skattskil tekið að sér skjalagerð við stofnun einkahlutafélaga eða annarra félagsforma. Við hjálpum þér að meta hvaða félagsform hentar þér og tryggum að rétt sé staðið að allri skjalagerð og við sjáum um að öllum gögnum sé skilað á rétta staði.
Fjárhagsbókhald
Reikningshald og skattskil sér um alla þætti fjárhagsbókhaldsins, færslu og afstemmningar, allt eftir óskum og þörfum hvers og eins viðskiptamanns. Við önnumst þessa þjónustu hvort sem þú er einstaklingur með rekstur, fyrirtæki eða félag, stórt eða smátt. Fjárhagsbókhaldið er að öllu jöfnu fært í dK viðskiptahugbúnaði og Sage Pastel eða með nettengingu við bókhaldskerfi viðskiptavina okkar.
Gerð lögbundna skilagreina
Reikningshald og skattskil annast fyrir viðskiptamenn sína, gerð lögbundna skilagreina , þ.á.m virðisaukaskattskýrslu, verktakamiðum, fjármagntekjuskatti og öðrum sköttum, ásamt uppgjöri á þeim.
Við færum reglubudið bókhaldið fyrir þig hvert vsk tímabil og þá er virðisaukaskattskýrslan tilbúin til frágangs.
Ársreikningur
Sérhæfðir, vel menntaðir starfsmenn hjá Reikningshald og skattskil sjá um gerð ársreikninga fyrir einkahlutafélög, einstaklinga með rekstur og félagasamtök. Við önnumst einnig milliuppgjör, ef viðskiptavinur okkar óskar þess.
Ársreikningur skal gerður í lok hvers bókhaldsárs og skal honum skilað til viðkomandi skattstofu.
Við gerð ársreiknings, tökum við að okkur skyldur skoðunarmanna reikninga fyrir einkahlutafélög.
Skattframtöl
Sérhæfðir, vel menntaðir starfsmenn hjá Reikningshald og skattskil sjá einnig um, auk ársreiknings að gera skattaframtal fyrir einkahlutafélög, einstaklinga með rekstur og félagasamtök.
Launavinnsla
Reikningshald og skattskil sér um alla þætti launavinnslunnar, og það skiptir ekki máli hvort starfsmennirnir eru 1 eða 100. Við þjónustum allt er varðar:
- Gerð tölvukeyrðra launaseðla
- Skilagreina til banka
- Skilagreinarvegna staðgreiðsluskatts og tryggingagjalds
- Skilagreina vegna lífeyrissjóða
- Skilagreina vegna stéttarfélaga
- Skilagreina vegna orlofs, meðlags o.s.frv.
- Launamiða og forskráningu launaupplýsinga til RSK
Við launakeyrslu leggjum við áherslu á öruggi í starfsmannamálum, þjónustu án tafa og sanngjarnt verð.
Ýmislegt
Annað
Toppmynd







