Fyrirtæki
Bænir og Brauð
GistiheimiliLaufásvegur 1 340 Stykkishólmur8205408
Gistihúsið er við Laufásveg 1 og stendur á hæð með frábæru útsýni yfir eyjar og sund, staðsett í jaðri gamla bæjarins. Stutt er í alla þjónustu, 2ja mínútu göngufæri í gamla bæinn með gömlu fallegu húsunum, veitingastöðum, Vatnasafni og sérstæða hafnarstæðinu. Einnig er um 3ja mínútu göngufæri í sundlaug og verslanir og einnig er skemmtilegur golfvöllur í næsta nágrenni.
Á neðri hæð hússins eru tvö tveggja manna herbergi búin góðum uppbúnum rúmum, handklæðum og baðsloppum.
Þar er einnig glæsileg snyrting með baðkari/sturtuaðstöðu, ásamt eldhúsi og stofu.
Á efri hæð hússins er eitt stórt tveggja manna herbergi búið uppbúnu góðu rúmi, handklæðum og baðsloppum og þar er sér snyrtiaðstaða.
Einnig er hægt að leigja alla hæðina og er þá gisti aðstaða fyrir allt að 6 manns .
Hægt er að fá rúm fyrir smábarn og aukadýnur. Þráðlaus nettengin er á staðnum.
Í suður er 170 fm verönd með heitum potti ásamt frábærri sólbaðsaðstöðu sem stendur gestum til boða , einnig hellulagður garður í vestur þar sem gott er að setjast og njóta rómaðrar kvöldsólar við Breiðafjörð .
Gestum stendur einnig til boða að nota grillaðstöðu á verönd gegn vægu gjaldi.
Verðskrá
Morgunverður 1.000 kr. pr mann
Heilsu morgunverður 1.300 kr. pr mann
Gisting ein nótt einn í herbergi 7.900 kr.
Gisting ein nótt tveir í herbergi 10.800 kr.
Gisting efri hæð allt að 6 manns ein nótt 17.800 kr
Aukadýna 2.500 kr. nóttin
Verkefni
Ýmislegt
Annað
Toppmynd







