Beint á leiðarkerfi vefsins

Fyrirtæki

Ekron

Starfsþjálfun og endurhæfingGrensásvegi 16a 108 Reykjavík5671212

EKRON er sértæk einstaklingsmiðuð atvinnutengd starfsþjálfun og endurhæfing fyrir einstaklinga með skerta vinnufærni sökum afleiðinga af áfengis- og vímuefnasýki.

Starfsþjálfunin og endurhæfingin er þátttakendum að kostnaðarlausu. Í upphafi þátttöku er lögð áhersla á að aðstoða þátttakendur við að vinna úr lögreglu- og dómsmálum, koma reglu á og fá yfirsýn yfir skuldastöðu og efla tengls við fjölskyldu.

Unnið er með sjálfsstyrkingu, fortíð, bakfallsvarnir og önnur persónuleg vandamál í reglulegum einkaviðtölum hjá ráðgjafa.

Á námskeiðum er unnið með gerð ferilskrár, vinnumöppu, sjálfsstyrkingu, fjármál, samskiptafærni, heimilisfræði, tréútskurð o.fl.

Hjalti framkvæmdarstjóriStarfsþjálfun og endurhæfing

Starfsþjálfunin er einstaklingsmiðuð og unnin af fagfólki. Markmiðið er að starfsþjálfunin sé frá 6 mánuðum og allt að 18 mánuðum. Það er stefna EKRON að eiga gott og náið samstarf við alla þá aðila sem vinna að forvörnum og áfengis- og vímuefnalausnum, t.d. sjúkrahús, heilsugæslu, félagsþjónustu, áfangaheimili og stoðbýli.
Unnið verður í hópum með hópstjórum sem leiðbeina og hafa umsjón með starfinu.

Fyrir hverja er starfsendurhæfing EKRON?

Markmið EKRON er að aðstoða óvirka alkóhólista og fíkniefnaneytendur, öryrkja og alla þá sem ekki eru á vinnumarkaði. EKRON er fyrir einstaklinga sem hafa ekki haft gott aðgengi að atvinnu og/eða gefast fljótt upp og flosna frá hverjum vinnustaðnum á fætur öðrum.
Við viljum hjálpa fólki að byggja sig upp fyrir framtíðina, að hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft svo það geti tekið virkan þátt í þjóðfélaginu á ný. Reynslan sýnir að fólk sem hefur verið lengi frá atvinnu hefur takmarkað starfsþrek og skerta getu til að fara aftur til starfa.

Fróðleiksmolar um nafnið EKRON

Ekron var borg við Miðjarðarhafið 1200 til 1300 fyrir Krist, ca. 30 km fyrir utan Jerúsalem. Þar var framleidd ólífuolía og þar bjuggu menn við tæknivædda menningu sem gerði þeim mögulegt að vinna úr járni, sem gaf þeim hernaðarlegt mikilvægi. Einnig gerði vinnsla þeirra á járni þeim kleift að skara fram úr í landbúnaði.

Borgin Akron í Ohio í Bandaríkjunum, þar sem AA-samtökin urðu til, rekur nafn sitt til Ekron, en neistinn sem tendraði fyrsta AA-hópinn kviknaði í Akron í júní 1935 og hrökk af samtali á milli verðbréfasala eins frá New York og læknis frá Akron.

Orðið Ekron þýðir uppræting, eyðing, en það er stefna okkar að uppræta og eyða myrkrinu í lífi fólks.

Hafið samband og við aðstoðum þig við að finna lausn á þínum vanda. 

Verkefni

EkronLogo  

Markmið EKRON  

Markmiðið er að aðstoða fólk við að byggja sig upp fyrir framtíðina þannig að það geti tekið virkan þátt í þjóðfélaginu á ný.

Þjónusta EKRON er fyrir alla einstaklinga, 18 ára og eldri sem hafa ekki gott aðgengi að vinnu og er þátttakendum að kostnaðarlausu

Mikið og þétt utanumhald verður um hvern einstakling og þá sérstaklega í upphafi með það að markmiði að auka kröfur til viðkomandi einstaklinga og auka ábyrgð þeirra gagnvart sjálfum sér. Mætingarskylda mun verða út allt prógrammið og mun verða frá sex mánuðum og upp í 18 mánuði. Einstaklingar geta lokið starfsþjálfuninni á mislöngum tíma. Fer það eftir því hvenær upphaflegu markmiðum meðferðarinnar er náð.

Að virkja mannauð hvers og eins og áhersla lögð á gagnvirka aðlögun einstaklingsins við sitt félagslega umhverfi, sem er forsenda þess að einstaklingurinn nái að þróa raunhæfa sjálfsmynd og sjálfsábyrgð.

Að einstaklingurinn finni út hæfni sína og þrói tengsl við aðra og læri að nýta samfélagslegar bjargir.

Að auka sjálfstraust, ákvarðanatöku og færni í starfsleit eða að hefja nám.

Að ná fullri færni og getu til atvinnuþátttöku og/eða náms.

Ýmislegt

Annað



Póstlisti

Auglýsingar

hjalpast_kirkjunnar

Auglýsingar

Kristilegt Félagsstarf
foglander_logo 
gralina


Toppmynd

antíkbudin

Stjórnborð

Stærra letur Minna letur Veftré Hafa samband RSS 2.0 straumar Hamur fyrir sjónskerta