Fyrirtæki

Samhjálp
Markmið Samhjálpar er að veita bjargir til þeirra einstaklinga sem halloka hafa farið í lífinu, vegna sjúkdóma, fátæktar eða annarra samfélagslegra vandamála og með því stuðla að velferð og sjálfsbjörg þeirra.
Höfuðstöðvar Samhjálpar eru að Stangarhyl 3A í Reykjavík. Þar eru skrifstofur, göngudeild og félagsmiðstöð til húsa og þar fer hluti forvarna- og eftirmeðferðarstarfsins fram, starf sem nú á sér rúmlega 33 ára sögu og hefð í borginni. Starfsemi Samhjálpar skiptist í eftirtaldar greinar:
- Háborg - félagsmiðstöð.
- Göngudeildin. Ráðgjafarþjónusta.
- Maríta. Forvarnasvið.
- Áfangahúsið Brú . Áfangaheimili eftir meðferð.
- Kaffistofan. Heitar máltíðir.
- Dorkas. Hjálparstarf fyrir konur. Systrafélag.
- Hlaðgerðarkot. Meðferðarheimli í Mosfellsdal.
- Stuðningsbýlið. Áfangaheimili með miklum stuðning.
- Heimilið. Heimili fyrir heimilislausa.
- Gistiskýlið. Neyðarathvarf fyrir heimilislausa karlmenn.
Markmið okkar með vef þessum er að kynna þá starfssemi sem í gangi er hverju sinni, flytja fréttir af starfinu og miðla góðum og gagnlegum upplýsingum. Vonum við einnig að finna megi hér hvatningu og uppörvun í pistlum um leið og og þú fræðist um hvað gerist á hverjum stað fyrir sig.
Þá má skoða dagskrána okkar og finna símanúmer og netföng starfsmanna. Einnig geta þeir sem það vilja styrkt starfið með styrktaráskrift að Samhjálparblaðinu.
Verkefni
Ýmislegt
Annað
Ná í flash spilarann.
Toppmynd






