Fréttir
Bænastund 17 júní
Á 17. júní var margt um manninn á samkirkjulegri bænastund í Hallgrímskirkju. Á milli fjögur og fimm hundruð manns komu til kirkju til að biðja fyrir Íslandi. Fjórtán fulltrúar jafnmargra kristinna safnaða og hópa lásu ritningarlestra og báru fram bænir fyrir níu málefnum. Beðið var fyrir íslensku þjóðinni, fjölskyldunum í landinu og ráðamönnum þjóðarinnar, fyrir atvinnumálum, menntamálum og heilbrigðismálum og loks fyrir kirkju Krists á Íslandi, listum og menningu og friði í heiminum. Á milli hinna kröftugu bæna var ekki síður kröftugur söngur sem allir viðstaddir tóku undir í.
Bænastundin var á vegum hóps fólks úr mörgum kristnum söfnuðum sem hefur í tæp tvö ár komið saman í Friðrikskapellu við Valsheimilið í hádeginu á miðvikudögum. Einnig komu fulltrúar úr Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga á Íslandi að bænastundinni. Er þessi bænastund sögulegur viðburður í samkirkjulegu starfi á Íslandi og ryður áfram braut þeirri öflugu bænahreyfingu sem hefur verið að myndast meðal kristinna safnaða hérlendis á undanförnum árum. Allir eru velkomnir á bænastundirnar í Friðrikskapellu kl. 12-13 hvern miðvikudag.
Toppmynd








Bæta við athugasemd