Fréttir
Biskup vill að söfnuðir kaupi rannsóknarskýrsluna
Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, hefur sent prestum og djáknum bréf þar sem hann hvetur til þess að söfnuðir kaupi eintak af skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis og láti liggja frammi í safnaðarheimilum. Í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni segir að þar geti sóknarbörn nálgast hana og lesið í henni og mælst er til þess að boðið verði upp á kaffi og auglýstar sérstakar samverustundir þar sem unnt verði að ræða skýrsluna.
Í bréfi biskups segir segir meðal annars að oft hafi verið rætt um mikilvægi þess að bjóða safnaðarheimilin fram sem opinn vettvang samtals um siðferði og samfélag, hér gefist tækifæri til þess og að stuðla að samræðu um þessa atburði á öruggum vettvangi. „Ýmsir kvíða skýrslunni og gætu viljað koma til kirkju til að tjá sorg sína og gera bæn sína í helgidóminum. Við skulum bjóða upp á slíkt og auglýsa viðveru prests og/eða djákna þar til bænar og sálgæslu," segir biskup meðal annars.
„Útkoma þessarar skýrslu hefur verið sögð einhver verstu tíðindi sem nokkur nefnd hefur flutt þjóðinni. Margir bera því ugg í brjósti vegna þessa og ekki síður vegna þess hvernig farið verður með þessi tíðindi og unnið úr þeim," segir einnig í bréfinu.
Bréf biskups
Til presta og djákna.
Kristur er upprisinn!
Eins og kunnugt er þá mun skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis koma út mánudaginn 12. apríl. Þetta er mikið rit, rúmlega 2000 blaðsíður að lengd og verður gefin út í níu bindum. Þar er fjallað um aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna 2008. Eitt bindið geymir skýrslu vinnuhóps sem skoðaði hvort skýringar á falli íslensku bankanna og tengdum efnahagsáföllum mætti að einhverju leyti finna í starfsháttum og siðferði. Útkoma þessarar skýrslu hefur verið sögð einhver verstu tíðindi sem nokkur nefnd hefur flutt þjóðinni. Margir bera því ugg í brjósti vegna þessa og ekki síður vegna þess hvernig farið verður með þessi tíðindi og unnið úr þeim.
Skýrslan verður gefin út á prenti og mun kosta um 6000 krónur. Hún verður aðgengileg á vefnum rannsoknarnefnd.is. Ég vil benda prestum á þann möguleika að sóknir kaupi eintak af skýrslunni til að liggja frammi í safnaðarheimilum næstu daga. Þar geti sóknarbörn nálgast hana og lesið í henni og gjarna boðið upp á kaffi og auglýstar sérstakar samverustundir þar sem unnt væri að ræða skýrsluna.
Spurt er hvers vegna að standa í þessu? Er ekki nóg að fjölmiðlarnir og stjórnmálamennirnir sjái um þetta, og svo samtalið í heitu pottunum og á blogginu?
Það hefur oft verið rætt um mikilvægi þess að bjóða safnaðarheimilin fram sem opinn vettvang samtals um siðferði og samfélag, hér gefst tækifæri til þess og að stuðla að samræðu um þessa atburði á öruggum vettvangi. Ýmsir kvíða skýrslunni og gætu viljað koma til kirkju til að tjá sorg sína og gera bæn sína í helgidóminum. Við skulum bjóða upp á slíkt og auglýsa viðveru prests og/eða djákna þar til bænar og sálgæslu. Gott væri að fá viðbrögð við þessari hugmynd og eins að heyra af öðrum hugmyndum úr sóknum landsins sem gott væri að geta komið á framfæri í fjölmiðlum og á vef kirkjunnar.
Í Guðs friði
Karl Sigurbjörnsson
Toppmynd








Bæta við athugasemd