Fréttir
Mansal
Mansal til umfjöllunar í Óháða söfnuðinum á skírdag
Á skírdag, fimmtudaginn 1. apríl, verður dagskrá Alþjóðlegs bænadags kvenna 2010 flutt í útvarpsguðsþjónustu í Óháða söfnuðinum við Háteigsveg kl. 11. Efni bænadagsins þetta árið kom frá kristnum konum í Kamerún. Eitt megin bænarefni þessarar alþjóðlegu hreyfingar um þessar mundir er baráttan gegn mansali og verður um það fjallað í guðsþjónustunni, hvernig það birtist og hvernig kirkjurnar geta brugðist við undir kjörorði bænadagsins: Upplýst bæn, bæn í verki. Umsjón hefur sr. María Ágústsdóttir ásamt um tuttugu konum frá ýmsum kristnum söfnuðum á höfuðborgarsvæðinu. Allir eru velkomnir á þessa samverustund sem þrátt fyrir alvarleika umfjöllunarefnisins einkennist af söng og þakklæti því að eins og konurnar í Kamerún segja: Við lofum Guð á tímum gleði og sorgar - já, á öllum tímum lofum við Guð!
Toppmynd








Bæta við athugasemd