Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

ABC dagur í Smáralind

 

Fyrsti ABC dagurinn verður haldinn laugardaginn 20. mars með glæsilegri dagskrá í Smáralind.  Markmið dagsins er fyrst og fremst að kynna starf ABC barnahjálpar, afla nýrra stuðningsforeldra og að safna fé til styrktar götubarnastarfi ABC barnahjálpar. Það er von ABC barnahjálpar að geta komið á fót athvörfum fyrir götubörn á Indlandi og fleiri starfslöndum ABC fyrir það fé sem safnast á ABC deginum. Söfnuninni Börn hjálp börnum lýkur sama dag en yfir 3500 börn í 118 skólum tóku þátt í söfnuninni, sem að þessu sinni var fyrir byggingu skólahúsnæðis fyrir fyrir 250 börn á Indlandi.

Neyðin er gríðarlega mikil í starfslöndum ABC barnahjálpar og eru nú mörg þúsund börn sem vantar styrktarforeldra. ABC barnahjálp er íslenskt hjálparstarf sem sett var á fót fyrir 22 árum. Hjálparstarfið gengur út á það að veita munaðarlausum, fátækum og umkomulausum börnum varanlega hjálp í formi skólagöngu, læknishjálpar og heimila þar sem þörf er á auk fæðis og klæða. Starfslönd ABC barnahjálpar eru Pakistan, Indland, Fillippseyjar, Úganda, Kenýa, Líbería, Senegal, Burkina Faso, Malí og Guinea Bissau.

 ABC dagurinn - tileinkaður hjálp fyrir götubörn:

Dagurinn hefst í World Class, Laugum þar sem hægt verður að hlaupa fyrir ABC milli klukkan 9-12. Kílómeterinn verður seldur á 500 krónur sem renna óskiptar til ABC.

Glæsileg dagskrá verður í Vetrargarðinum í Smáralind frá klukkan 13 til 19 og er aðgangur ókeypis. Fjöldi listamanna gefa vinnu sína, þeirra á meðal: Raggi Bjarna, Logi Bergmann, Páll Rósinkranz , Villi naglbítur, Sjonni Brink, Hreimur, Skoppa og Skrítla, Siggi Ingimars, færeyska söngkonan Dorthea og grasrótartónlistarmenn eins og Ástþór Óðinn, Friðrik Dór, Magga Edda, Orri Err, Óli107, Extra, Nögl, Stjörnuryk og Siggi Breiðfjörð auk þess sem fimleikastúlkur úr Gerplu sýna listir sínar.

Hægt verður að kynnast starfsemi ABC á stöðvum um allt hús og gerast styrktarforeldri eða styrkja starfið með fjárframlögum.

Á göngum Smáralindar verða krakkar með tómbólur og safna fyrir ABC og geta áhugasamir krakkar geta skráð sig á stöðvum ABC í Smáralind.

Verslanir í Smáralind taka virkan þátt í ABC deginum með ýmsum hætti og hafa m.a. gefið vinninga á  hlutaveltu og uppboð sem Logi Bergmann stýrir. Borgarleikhúsið gefur leikhúsmiða og Vesturport hluta af aðgangseyri á Faust sama kvöld.

Í Vetrargarðinum verður einnig safnað gömlu gulli til styrktar götubarnastarfinu og þeir sem eiga skartgripi sem liggja ónotaðir eru hvattir til að nýta tækifærið og láta þá verða til góðs.

Til þess að taka þátt í ABC deginum er hægt að hringja  í síma 414-0990 frá kl.13-18 fyrir frjáls peningaframlög eða hringja í söfnunarsímana 907-1001 til að gefa 1000 kr., 907-1003 til að gefa 3000 kr. og 907-1005 til þess að gefa  5000 kr. til hjálparstarfsins. Einnig er hægt að skrá sig sem stuðningsaðila barns eða götubarnastarfsins á heimasíðu ABC, http://www.abc.is/.

Dagskrá ABC dagsins í Smáralind verður sett inn á heimasíðu ABC í dag föstudag.

Það er von okkar að þessi tölvupóstur fari sem allra víðast svo við biðjum ykkur vinsamlegast um að áframsenda hann á ykkar vini og vandamenn.

Kærar þakkir

kveðja

ABC barnahjálp

Bæta við athugasemd

Öryggistala


Póstlisti

Auglýsingar

Ekron Starfsþjálfun

Auglýsingar

Kristilegt Félagsstarf
foglander_logo 
gralina


Toppmynd

antíkbudin

Stjórnborð

Stærra letur Minna letur Veftré Hafa samband RSS 2.0 straumar Hamur fyrir sjónskerta