Fréttir
Sarah Kelly með tónleika
Á laugardagskvöldið voru tónleikar í hvítasunnulkirkjunni Fíladelfíu með Söru Kelly.
Sarah Kelly hefur í tvisvar verið útnefnd til Grammy verðlauna, hún hefur t.d starfað með framleiðanda Guns'n Roses og Meatloaf. Árið 2008 söng hún fyrir Óskarsverðlaunahafa og á tónlist í þáttunum Grey's Anatomy. Rödd hennar er líkt við blöndu af Janis Joplin og Norah Jones og syngur hún rokkaða Indie Gospel tónlist. Hún hefur komið áður til Íslands og elskar að spila fyrir Íslendinga sem hún segist ná svo góðri tengingu við. Sarah er þekkt fyrir að draga hvergi í land á tónleikum og gefa mikið af sjálfri sér í tónlistarflutninginn. Hljómsveitin G.I.G. mun leika undir hjá Söruh.
Tríó Vadim Fyodorov hitaði upp og uppskáru mikið lófatak fyrir frábæran flutning. Tríóið leikur franska musett tónlist og jazz í hefðbundnum stíl.
Tónleikarnir voru styrktir af bandaríska sendiráðinu.
Toppmynd








Bæta við athugasemd