Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Ný bók - Þitt fól mitt fólk

þitt fólk mitt fólk„Þitt fólk er mitt fólk" er ný bók eftir Don Finto sem er þýdd á íslensku og gefin út af Bænahúsinu.

Umfjöllun um það hvernig Ísrael, Gyðingar og kristin kirkja eiga eftir að tengjast á síðustu tímum. Alltof margir telja kristindóminn hafa komið í stað gyðingdóms og að Ísrael standi nú utan áætlunar Guðs.

Bókin "Þitt fólk er mitt fólk" opinberar áætlun Guðs fyrir sáttmálafólk hans á þessum tímum - og hvaða áhrif þessi opinberun hefur á kirkjuna. Ólíkt því sem Rut gerði í Gamla testamentinu, höfum við mörg hver snúið baki við ættingjum Messíasar og berum sekt aldanna fyrir ofsóknir gegn þeim. Ísrael er enn og aftur miðpunkturinn í sögu heimsins og bænir okkar fyrir Landinu og fólki þess eru nauðsynlegar. Gerum við sama sáttmálaheit við Ísrael og Rut gerði við Naomí? Það breytir kirkju okkar ef við gerum það.

Fjallar um þau umskipti sem urðu á gyðingdómnum við fórnardauða Jesú og hvernig frumkirkjan breyttist úr gyðingasöfnuði í fjölþjóðasöfnuð. Gyðingahatur sem ýtti Gyðingum út úr kirkjunni og næstum útrýmdi þeim þjóðflokk sem gaf okkur frelsara mannkyns og hinar heilögu ritningar. Fyrir sex daga stríðið 1967 voru aðeins um tvö þúsund messíanskir Gyðingar í heiminum en eftir þetta snarpa stríð í Ísrael varð vakning meðal Gyðinga og í dag eru fleiri hundruð þúsunda Gyðinga sem játa trú á Jesú sem messías.

Don Finto tengir saman sögu Gyðinga og kirkjunnar á einstaklega vandaðan og faglegan hátt. Bók fyrir alla sem vilja kynna sér þetta hitamál um Ísrael, hvort sem þeir séu með eða á móti.


Verð bókar er 3.990 kr.

Hægt að biðja um eintak með því að senda mail á kolbeinn@vonin.ws eða fá hana í næstu bókabúð.

Bæta við athugasemd

Öryggistala


Póstlisti

Auglýsingar

Ekron Starfsþjálfun

Auglýsingar

Kristilegt Félagsstarf
foglander_logo 
gralina


Toppmynd

antíkbudin

Stjórnborð

Stærra letur Minna letur Veftré Hafa samband RSS 2.0 straumar Hamur fyrir sjónskerta