Fréttir
Jólabasar Kefas
Þann fyrsta í aðventu, sunnudaginn 29. nóvember, verður árlegur jólabasar Fríkirkjunnar Kefas frá kl. 13-17.
Á basarnum verður happadrætti fyrir börn og fullorðna með vinningum á öllum miðum, heimabakaðar kökur, handverk, fallegar gjafavörur og margt annað. Rjómavöfflur, kaffi og gos verða til sölu og hægt verður að njóta veitinganna undir lifandi hátíðartónlist sem hljómsveit hússins leikur. Einnig munu Lay Low, hjónin Eva Dögg Sveinsdóttir og Einar Sigmundsson og hópurinn Gospel Invasion Group líta við yfir daginn og taka lagið.
Í sal kirkjunnar verða börn úr sunndagaskólanum með sýningu á listaverkum sem verða til sölu og rennur andvirði þeirra til Hjálarstarfs kirkjunnar. Hluti af ágóða basarsins rennur til góðgerðamála.
Líttu við og gerðu góð kaup hátíðarskapi!
Fríkirkjan Kefas
Fagraþingi 2a v/ Vatnsendaveg
www.kefas.is
Toppmynd








Bæta við athugasemd