Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Anne Marie Reinholdtsen látinn

Anne Marie Reinholdtsen

 Anne Marie Reinholdtsen
14.12.1950 - 19.06.2010 †

Það er með djúpri sorg sem við tilkynnum að okkar kæri foringi var hafin upp til dýrðarinnar laugardaginn 19. júní.
Við biðjum ykkar að byja fyrir fjölskyldu hennar á þessum erfiðu tímum.

Bænastund 17 júní

Á 17. júní var margt um manninn á samkirkjulegri bænastund í Hallgrímskirkju. Á milli fjögur og fimm hundruð manns komu til kirkju til að biðja fyrir Íslandi. Fjórtán fulltrúar jafnmargra kristinna safnaða og hópa lásu ritningarlestra og báru fram bænir fyrir níu

Lög um greiðsluaðlögun andstæð stjórnarskrá

Héraðsdómur Suðurlands hefur komist að þeirri niðurstöðu að tveir ábyrgðarmenn konu sem fór í greiðsluaðlögun skuli greiða skuldir hennar. Sparisjóður Vestmannaeyja krafðist þess að ábyrgðarmennirnir greiddu skuldir konunnar þrátt fyrir að ekki sé gert ráð fyrir því í lögum. Sjóðurinn taldi ákvæði í lögunum andstæð stjórnarskrá. Undir það sjónarmið tók Héraðsdómur

Biskup vill að söfnuðir kaupi rannsóknarskýrsluna

Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, hefur sent prestum og djáknum bréf þar sem hann hvetur til þess að söfnuðir kaupi eintak af skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis og láti liggja frammi í safnaðarheimilum. Í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni segir að þar geti sóknarbörn nálgast hana og lesið í henni og mælst er til þess að boðið verði upp á kaffi og auglýstar sérstakar samverustundir þar sem unnt verði að ræða skýrsluna.

Nú þarf að lyfta grettistaki

páskasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar
Haítí - uppbyggingarstarf

Nú þarf að lyfta grettistaki í uppbyggingarstarfi á Haítí. Vilt þú vera með? Hjálparstarf kirkjunnar safnar nú fyrir verkefnum á Haítí.

Afleiðingar af jarðskjálftanum á Haítí 12. janúar 2010 sem mældist 7 á Richter eru hrikalegar. Meira en 200.000 manns eru látnir, um 300.000 slasaðir, 1.2 milljónir manna misstu heimili sín og lifa í tjöldum og bráðabirgðahúsnæði í höfuðborginni Port-au-Prince.

Mansal

Mansal til umfjöllunar í Óháða söfnuðinum á skírdag

Á skírdag, fimmtudaginn 1. apríl, verður dagskrá Alþjóðlegs bænadags kvenna 2010 flutt í útvarpsguðsþjónustu í Óháða söfnuðinum við Háteigsveg kl. 11. Efni bænadagsins þetta árið kom frá kristnum konum í Kamerún.

ABC dagur í Smáralind

Fyrsti ABC dagurinn verður haldinn laugardaginn 20. mars með glæsilegri dagskrá í Smáralind.  Markmið dagsins er fyrst og fremst að kynna starf ABC barnahjálpar, afla nýrra stuðningsforeldra og að safna fé til styrktar götubarnastarfi ABC barnahjálpar.

Bæn fyrir landi og þjóð

n3

Sameiginleg bænastund fór fram við Austuvöll í dag kl: 12:30 þar sem samanvioru komnir hátt í hundrað man sem báðu fyrir landi og þjóð og blessuðu Bæði breta og Hollendinga með slagorðinu blessum en bölvum ekki.

Sjá nánar hér

Bænastund á Austurvelli

Bænastund kristinna trúfélaga á Austurvelli miðvikudaginn 3. mars kl. 12:30

Fulltrúar kristinna trúfélaga á höfuðborgarsvæðinu ætla að koma saman til stuttrar bænastundar á Austurvelli n.k miðvikudag, 3. mars, kl. 12:30 til að biðja fyrir þjóðinni og ráðamönnum hennar. Með því vill hópurinn undirstrika að kristið fólk á Íslandi ber hag þjóðarinnar mjög fyrir brjósti.

Hendum ekki verðmætum!

frimerkiFréttatilkynning frá Sambandi íslenskra kristniboðsfélaga (SÍK) 5. janúar 2010:

Hendum ekki verðmætum!
Notuðum frímerkjum safnað til hjálparstarfs

Samband íslenskra kristniboðsfélaga (SÍK), í samstarfi við Póstinn, hefur nú hafið söfnun á notuðum frímerkjum. Heiti verkefnis er: Hendum ekki verðmætum! Söfnunin stendur til 31. janúar 2010 og er tekið við frímerkjum og umslögum á öllum póstafgreiðslum Póstsins um land allt.



Póstlisti

Auglýsingar

hjalpast_kirkjunnar

Auglýsingar

Kristilegt Félagsstarf
foglander_logo 
gralina


Toppmynd

antíkbudin

Stjórnborð

Stærra letur Minna letur Veftré Hafa samband RSS 2.0 straumar Hamur fyrir sjónskerta