Kirkjur og samfélög

CTF - Reykjavík
KirkjaHáteigsvegi 75113377Ctf - Reykjavík
Okkar sýn er að sjá vakningarelda brenna um alla jörðina til allra þjóða! Markmið okkar er að reisa upp venjulegt fólk, gefa þeim tækifæri til að nota þær gjafir sem Guð hefur gefið þeim, senda þau til þjóðanna svo allir megi upplifa tákn, undur og kraftaverk bæði líkamlega og í hjörtum sínum. Við þráum að allir trúaðir taki stöðu sína til að breyta heiminum eins og Jesú gerði og gangi í elsku Guðs og gefi hana frá sér þangað til að jörðin er full af þekkingu á dýrð Guðs. Catch the Fire (CTF) hefur þá áætlun að þjálfa og gera venjulegt fólk í kirkjunni hæft til að bera vakninguna inn á heimili sín, inn í kirkjurnar sínar, á vinnustaðina sína, skólana til samfélagsins sem þau búa í og til þjóðar sinnar. Þetta gerum við með því að vera með mismunandi skóla, ráðstefnur og fyrirlestra bæði hér heima og að heiman, þannig deilum við okkar gildum og því sem við teljum vera lyklar að vakningu.
Bæna og Soaking herbergið er opið alla virka daga frá kl.10:00-17:00.
Ljúf Soaking tónlist er spiluð allan daginn. Hægt er að panta bænaþjónustu í bænarherberginu í síma 511-3377.
Soaking - að eyða tíma með Guði, kynnast Honum og fyllast af Anda Hans og elsku. Njóta þess að vera með Honum í Hans nærveru. Hvílast í Hans ást. Guð notar þennan tíma til að endurbyggja, endurnýja og reisa upp einstaklinga.
Hér eru ábendingar sem gætu nýst í soaking
- Slökun - Komdu þér vel fyrir.
- Einbeiting - Hreinsa hugann af erli dagsins, gott er að setja rólega tónlist á til þess að einbeita sér að nærveru Guðs.
- Meðtaka - Hvíldu í návist Guðs, opnaðu hjarta þitt og vertu tilbúin/n að mæta Honum.
- Oft erum við full af hugsunum og náum ekki að hreinsa hugann, þá er gott að skrifa þessar hugsanir á blað til að geta skoðað þær síðar.
- Til að ná slökun er gott að fara í þægilega stellingu, sitja eða liggja, gott getur verið að nota dýnu, teppi og kodda.
- ¨egar þú hefur náð slökun einbeittu þér þá að Guði. Lofgjörðar tónlist getur hjálpað þér.
- ¨ú getur farið með bæn eins og þessa: "Ég opna hjarta mitt fyrir þér Faðir, komdu og segðu mér það sem þú vilt segja mér, endurnærðu mig með þínum heilaga anda"
- Oft talar Guð til okkar þegar við liggjum í Hans nærveru þannig að gott getur verið að hafa með sér skrifblokk og penna.
¡¡
www.soaking.net
Leiðtogar
Guðbjartur Guðbjartsson & Sigga Helga Ágústsdóttir
Leiðandi Pastorar CTF Reykjavík
Líf Guðbjarts og Siggu Helgu gjörbreyttist þegar þau upplifðu lækningu bæði líkamlega og andlega á sínu fyrsta móti hjá TORONTO AIRPORT CHRISTIAN FELLOWSHIP. Guðbjartur hafði í mörg ár verið í viðskiptum sem höfðu átt hug hans allan og krafta, en frá og með þeirri stundu þegar hann og Sigga Helga heyrðu kennsluna um Föðurhjarta Guðs varð allt nýtt í lífi þeirra, þau fengu ný lífsgildi og köllun.
Þau hafa fengið að sjá lækningar, tákn og undur sem þau héldu að aðeins tilheyrði tímum postulanna en vita í dag að þetta er hluti af köllun og þjónustu þeirra sem trúa. Löngun þeirra til að sjá fólk lifa í elsku Föðurins og vaxa í elsku til hvers annars varð til þess að þau svöruðu þeirri köllun að stofna CTF Reykjavík. Þau hafa sótt hin ýmsu námskeið og ráðstefnur hjá TORONTO AIRPORT CHRISTIAN FELLOWSHIP & CATCH THE FIRE MINISTRIES. Einnig hafa þau tekið þátt í og haldið fjölda móta, ráðstefnur og námskeið hér heima og að heiman. Þrá þeirra í dag er að sjá fólk upplifa innri lækningu og fullvissu um elsku Föðurins, þannig að hver og einn geti lifað öruggur í þeirri dýrmætu köllun sem Guð hefur fyrir líf sinna barna.
Hrefna Gísladóttir og Magnús Gylfason
Pastorar CTF Reykjavik
Undanfarin ár hafa Hrefna og Magnús fundið fyrir vaxandi hungri og þrá eftir meira frá Guði, þrá eftir því að eignast dýpra samfélag við Hann og taka nýja stöðu í ríki Hans. Guð opnaði þeim dyr til að fara til Bethel, sem er kirkja Bill Johnson's, í biblíuskóla í Redding Kaliforníu Þar fengu þau að upplifa kraft Guðs og elsku Hans og sáu og upplifðu orð Jesú þegar Hann sagði í Jóhannesar guðspjalli 14:12; ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir á mig, mun einnig gjöra þau verk, sem ég gjöri. Og hann mun gjöra meiri verk en þau, því ég fer til föðurins." Í gegnum drauma og sýnir leiddi Guð þau svo á þann stað sem þau eru á í dag sem pastorar CTF Reykjavík Þau þrá að sjá vilja Föðurins og dýrð Hans ná fram að ganga bæði í lífum þeirra sem þekkja Hann og þeirra sem enn eru í leit sinni eftir sannleikanum. Þau þrá að sjá kraft Guðs, elsku Hans og tákn og undur fyrir heilagan anda fylgja hverjum trúuðum einstaklingi. Hrefna stýrir bænastarfi kirkjunnar og Magnús hefur yfirumsjón yfir heimahópunum ásamt Hannesi Lentz.
Baldur Freyr og Berglind Rós
Pastorar Kærleikans
Baldur og Berglind hafa fengið að upplifa elsku Guðs og miskunn Hans á undursamlegan hátt, líf þeirra er stórkostlegur vitnisburður um kærleika Krists og kraft Hans til að gera alla hluti nyja. Þau hafa bæði fengið að upplifa lækningu til anda, sálar og líkama og vita að Guði er enginn hlutur um megn. Vegna reynslu sinnar hafa þau brennandi löngun, knúin áfram af kærleika, til að ná til allra sem eru bundnir í einhvers konar fjötrum, færa þeim lausn og von um nýtt og betra líf. Þau elska nærveru Guðs og hafa óbilandi trú á krafti heilags anda og áætlun hans til að starfa í gegnum hvern og einn trúaðan. Berglind hefur hjarta fyrir brotnum konum og þráir að sjá þær frjálsar, lausar undan fortíðinni. Löngun Baldurs til að sjá fjötraða verða frjálsa, huggun og miskunn Guðs ná til þeirra sem þjakaðir eru, varð kveikjan að því að hann stofnaði Kærleikann, Baldur hefur sótt hin ýmsu námskeið og ráðstefnur hja TORONTO AIRPORT CHRISTIAN FELLOWSHIP & CATCH THE FIRE MINISTRIES og hefur einnig tekið þátt í að halda fjölda móta og námskeiða hér heima. Einkunnar orðin þeirra eru ; Elskum fólk til lífs !
Eric og Lindsay Dugas
Lofgjörðar Pastorar CTF Reykjavík.
Líf Eric and Lindsay umbreyttist á stórkostlegan hátt þegar þau sóttu Toronto School of Ministry 2008. Þau eignuðust djúpan skilning á Föðurhjarta Guðs, og því að heiðra Guð, sjálfan sig og aðra. Þau lifa í því að vera sonur og dóttir Guðs, og eiga náið samfélag við Föður sinn á himnum. Eric og Lindsay voru lofgjörðarleiðtogar og pastorar yfir unglingastarfi áður en Guð kallaði þau í School of Ministry. Á sama tíma setti Guð djúpt hungur í hjörtu þeirra beggja að flytja til Íslands, og kenna fólki um Föðurhjarta Guðs. Hugsjón þeirra er að sjá fólk losna undan skömm og sjá Guð leiða það inn í frelsið sem fylgir því að vera elskaður af Föðurnum og eiga þetta nána yndislega samfélag við Hann. Trú þeirra er að tákn og undur eiga að fylgja þeim sem trúa.
Sunna Jónína Sigurðardóttir og Hjalti Þór Grettisson
Unglinga Pastorar CTF Reykjavík
Sunna og Hjalti hafa starfað með unglingum um ára bil og þrá að sjá ungt fólk styrkjast í Guði.
Sunna hefur tekið virkan þátt í unglingastarfi frá því hún var 13 ára og tekið þátt í ýmsu starfi því tengdu, s.s. danshópi, lofgjörð og fyrirbæn. Hún hefur einnig starfað með Nýrri kynslóð, sem eru samkirkjuleg samtök. Hún þráir að virkja ungt fólk í gjöfum Andans og þeim hæfileikum sem Guð hefur gefið þeim.
Hjalti hefur tekið þátt í kristilegu starfi fyrir ungt fólk síðan hann gaf Guði líf sitt tvítugur að aldri. Hjarta hans brennur sérstaklega fyrir því að sjá ungt fólk upplifa Guð á persónulegan og kröftugan hátt, lifa í öllu því sem Hann hefur ætlað sínum börnum og verða svo blessun út í allt samfélagið. Hjalti hefur predikað og kennt við ýmis tækifæri og sinnt ýmis konar annarri þjónustu í kirkjunni.
¨au hafa bæði stundað nám í Biblíuskóla, Hjalti lauk 2 árum í Masters Comission á Íslandi en Sunna fór til Norður-Noregs í skóla á vegum Youth With a Mission.
Sunna og Hjalti elska að biðja fyrir sjúkum og sjá þá læknast, gefa spádómsorð inn í líf fólks og uppörva það. Þau vilja um fram allt að uglingastarfið sé fyllt af nærveru heilags anda, kröftugt og skemmtilegt.
Kristín Terrazas
Barna Pastor CTF Reykjavík
Opinberun á Föður elsku Guðs og 12 sporakerfið hafa leitt Stínu á þann stað sem hún er á í dag. Hún elskar orð Guðs og þá miklu náð sem hjá honum er að finna. Hún hefur farið í gegnum ILSOM l og ll, auk þess að hafa sótt innri-lækningarnámskeið og Föðurhjarta Guðs kennslur. Hún þekkir af eigin raun nauðsyn þess að hafa opinberun á elsku Guðs og láta leiðast af anda hans. Þrá hennar er að börnin í barnastarfinu eignist persónulega vináttu við Heilagan Anda og sjái Guð sem elskandi Föður sem vakir yfir þeim með eilífri blessun sinni. Stína notar kennsluefni frá kirkju Bill Johnson.
Myndir og myndbönd
Fleira
Margvísleg starfsemi er í kirkjunni.
Hægt er að lesa nánar um starfsemina með því að velja undirsíðurnar hér að ofan.
Allir eru hjartanlega velkomnir á þessar stundir.
CTF Reykjavík kirkjan er á Háteigsvegi 7.
Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 10:00 - 17:00.
Konudagur
Gestur okkar verður Kate Smith eiginkona Duncan Smith. Með henni verða 3 bænakonur sem munu þjóna inn í líf okkar. Við byrjum kl 10:00 með lofgjörð sem verður í umsjón Maríönnu Másdóttur ,fáum svo kennslu frá Kate Smith sem ber yfirskriftina, Leifðu mér að kynna þig fyrir elskuhuga mínum. kl 12:00 Hádegismatur kl 13:30 Risarnir í landinu : kennari Ástríður Júlíusdóttir.
Toppmynd







