Kirkjur og samfélög

Íslenska Kristskirkjan
KirkjaFossaleyni 14 Gravarvogi5678800
Íslenska Kristskirkjan er lútherskur fríkirkjusöfnuður, viðurkennt skráð trúfélag og veitir meðlimum sínum alla almenna kirkjulega þjónustu svo sem skírn, fermingu, hjónavígslur og útfarir. Söfnuðurinn á bakgrunn sinn í samtökunum Ungt fólk með hlutverk, sem störfuðu í 21 ár sem leikmnannahreyfing innan þjóðkirkjunnar. Íslenska Kristskirkjan var stofnuð haustið 1997.
Kenningargrundvöllur kirkjunnar er hinn sami og annarra lútherskra safnaða. Við leggjum áherslu á endurlausnarverk Jesú Krists og þá fyrirgefningu sem okkur hlotnast fyrir trúna á hann og að allir menn verði að eignast lifandi trú. Við leggjum áherslu á mikilvægi Biblíunnar sem heilagrar ritningar og að í henni birti (opinberi) Guð okkur syndugum mönnum vilja sinn og sýni okkur leiðina til hjálpræðis og helgunar í daglegu lífi. Við trúum því að Biblían sem innblásin af Heilögum anda og þannig einsök sem Orð Guðs og æðsta viðmiðun í öllu er varðar trú og breytni. Við leggjum áherslu á verk Heilags anda og mikilvægi náðargjafa hans eins og þeim er lýst í Nýja testamentinu.
GUÐSÞJÓNUSTUR OG SAMKOMUR
Frá 1. september til 30. maí eru guðsþjónustur á sunnudögum kl. 11:00. Þar er fræðsla fyrir börn og fullorðna. Börnunum er skipt í þrjá aldurshópa og fá þau fræðslu við sitt hæfi á meðan fullorðnir fá sína fræðslu. Einu sinni í mánuði er heilög kvöldmáltíð. Samkomur eru alla sunnudaga kl. 20:00, allt árið um kring, með léttri tónlist, fyrirbæn og lifandi predikun.
Fyrirkomulag á guðsþjónustum okkar og samkomum er frjálslegra en fólk er yfirleitt vant í þjóðkirkjunni. Prestur okkar klæðist ekki hempu. En á hátíðum og við sérstakar athafnir og tækifæri svo sem heilaga kvöldmáltíð, skírn, fermingar, hjónavígslur og útfarir klæðist hann ölbu (hvítri skikkju) og stólu. Tónlistin í krikjunni er nútímaleg og fólk hvatt til að njóta þess sem fram fer, lofa Guð í einlægni og eins og því er eðlilegt, t.d. með því að standa upp undir lofgjörðinni. Ræður eru blátt áfram og lausar við skúrðmælgi og miða að því að fólk skilji boðskapinn og geti hagnýtt sér hann í daglegu lífi.
BARNA OG UNGLINGASTARF
Við leggjum mikið upp úr góðri fræðslu og uppbyggingu fyrir börn og unglinga.
UNIK er heiti á unglingastarfi Íslensku Kristskirkjunnar en öll föstudagskvöld eru samkomur fyrir ungt fólk í kirkjunni kl. 19:30.
Unga fólkið hittist reglulega einu sinni í viku í heimahópum. Þar eiga þau samfélag saman og uppfræðast um kristindóminn, lífið og tilveruna.
Barnastarf kirkjunnar er mjög öflugt og ber heitið Lofgjörðarland, en á sunnudagsmorgnum er fræðsla við hæfi hvers aldurshóps, með leikjum, kennslu og gleði.
ANNAÐ STARF
Í kirkjunni er fjölbreytt starf.
Söfnuðurinn stendur fyrir ýmsum námskeiðum svo sem Alfanámskeiðum, hjónanámskeiðum, bænanámskeiðum og fleiri fræðslustundum.
Einnig er veitt fjölskylduráðgjöf, sálgæsla og fyrirbænir.
Fólki er gefinn kostur á að taka þátt í starfi heimahópa sem hittast reglulega í heimahúsum og eiga þar samfélag saman.
PRESTUR SAFNAÐARINS
Friðrik Schram
STAÐSETNING KRISTSKIRKJUNNAR
Íslenska Kristskirkjan er til húsa að Fossaleyni 14 í Grafarvogi. Þar er kirkjusalurinn og skrifstofa safnaðarins, en hún er opin frá þriðjudegi til föstudags frá klukkan 13:00 til 17:00
ALLIR ERU VELKOMNIR Á SAMKOMUR OG GUÐSÞJÓNUSTUR KIRKJUNNAR
Leiðtogar
Myndir og myndbönd
Toppmynd






