Kirkjur og samfélög

Vegurinn
Kirkja fyrir þig! Smiðjuvegi 3 200 Kópavógi564 2355Hvað er Vegurinn?
Vegurinn er kristinn söfnuður (kirkja). Hugsjón Vegarins er að starfrækja öflugt, lifandi og kærleiksríkt safnaðarstarf sem er leitt af Heilögum Anda.
Vera lækningarmiðstöð þar sem þörfum fólks er mætt tilfinningalega, líkamlega og andlega. Hvetja til og stuðla að samvinnu kristinna safnaða á Íslandi með það að markmiði að breiða út fagnaðarerindið um Jesú Krist.
Tilgangur Vegarins er að leiða fólk til Jesú og í söfnuð hans, þroska það sem lærisveina til Krists fyllingar og til þjónustu í kirkjunni. Senda það síðan út sem trúboða, allt Guði til dýrðar. Samkvæmt Matt. 22.37-40; 28.19-20.
Þeir sem stofnuðu Veginn komu úr hreyfingu sem kom út úr svokallaðri náðargjafavakningu. Þessi vakning fór af stað um miðja síðustu öld og kom hingað til lands um 1970. Þegar talað er um náðargjöf, er verið að tala um gjafir andans eða gáfur andans eins og stendur í 1.Kor. 12.7-11. Fólk kom saman og var opið fyrir því sem Heilagur Andi vildi koma með, svo sem tungutal, útleggingu á tungutali, spádómsorð, greiningu anda, lækningargáfu og að tala af speki eða þekkingu, allt var þetta inn í myndinni. Ræða Péturs á Hvítasunnudag inniheldur þetta allt: "að Guð muni úthella Anda sínum yfir allt hold á efstu dögum, synir yðar og dætur munu spá ofl". Heilagur Andi er við stjórnvölinn og gefur mönnum gjafir (gáfur). Þetta var það sem við höfðum að leiðarljósi, að við værum ekki föst í einhverju formi, en það er það sem okkur er svo tamt. Við erum svo vanaföst, við höfum alltaf gert hlutina á ákveðin hátt og það er erfitt að breyta þeim. En Heilagur Andi vill að við séum upptekin af honum en ekki mönnum, því mennirnir gera mistök en Heilagur andi ekki.
Þegar við skilgreinum Veginn þá tölum við um Charismatica kirkju eða Nýja Testamentiskirkju. Oft tölum við um Postulasöguna, við viljum sjá söfnuð eins og talað er um þar. Páll talar í sínum bréfum um öldunga og hann hvetur Títus til að setja inn öldunga (Tít. 1.5) Í 1Tím. 5.17 stendur "öldungar þeir, sem veita góða forstöðu, séu hafðir í tvöföldum metum, allra helst þeir sem erfiða í orðinu og í kennslu."
Í Veginum eru öldungar sem leiða söfnuðinn og taka ákvarðanir í andlegum og veraldlegum málum safnaðarins. Biblían er Guðs orð og er hún okkar leiðarljós.
Vegurinn var stofnaður 1982 og lítum við á október sem okkar afmælismánuð. Þegar ég horfi yfir þessi ár sem liðin eru þá koma orð Krists í huga minn þar sem hann segir í Matt. 16.18 "ég mun byggja mína kirkju, og máttur heljar mun ekki á henni sigrast. Það er margt framundan, en markmið okkar tekst ekki nema við stöndum saman og vinnum samkvæmt orðum Krists "að elska Guð af öllu hjarta og náungann eins og sjálfan þig".
Skrifstofa og bókabúð kirkjunna er opin frá kl. 13:00 til 16:00 á þriðjudögum til föstudaga og bókabúðin er alltaf opinn eftir samverustundir í kirkjunni. Símanúmer kirkjunnar er 564-2355 netfang: vegurinn@vegurinn.is heimasíða: www.vegurinn.is Heimilisfang: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
Í Guðs friði Högni Valsson.
Forstöðumaður
Leiðtogar

Lilja Ástvaldsdóttir og Högni Valson, forstöðuhjón Vegarins.
Í Veginum eru öldungar sem leiða söfnuðinn og taka ákvarðanir í andlegum og veraldlegum málum safnaðarins. Biblían er Guðs orð og er hún okkar leiðarljós.
Í Veginum eru öldungar sem leiða söfnuðinn og taka ákvarðanir í andlegum og veraldlegum málum safnaðarins. Biblían er Guðs orð og er hún okkar leiðarljós.
Myndir og myndbönd
Toppmynd







