Beint á leiðarkerfi vefsins

Leikreglur í samkirkjulegu starfi

Hvaða leikregur bera að hafa í samkirkjulegu starfi? 

Friðrik Ó. Schram


Á okkar tímum fer samkirkjulegt starf vaxandi. Samkirkjulegt starf er einfaldlega samskipti og samstarf ólíkra safnaða og/eða kirkjudeilda. Það felst t.d. í því að ýmsar kirkjudeildir halda sameiginlega bænasamkomu eða hátíð eins og þá sem haldin var í Laugardalnum s.l. sumar í tengslum við 1000 ára afmæli kristni í landinu. Annað dæmi um samkirkjulegt starf er Youth with a mission, (skammst. YWAM) þar sem fólk úr ólíkum kirkjudeildum starfar saman undir merkjum hreyfingarinnar til þess að boða fagnaðarerindið og gera aðra að lærisveinum Krists. Ungt fólk með hlutverk (skammst. UFMH) var grein á því starfi, en UFMH hafði þó þá sérstöðu (með leyfi YWAM) að starfa f.o.f. innan Ísl. þjóðkirkjunnar. Önnu dæmi um samkirkjulegt starf er t.d. Aglow International, Promise keepers (Menn með markmið) og Heimsráð kirkna. 
Á liðnum áratugum hefur oft verið reynt að vinna að samkirkjulegu starfi hér á landi, en því miður hefur slíkt samstarf steytt á skerjum og dregið úr því vegna misskilnings, vonbrigða og rangs framgangsmáta þeirra sem að því unnu. Þetta þarf að breytast.

En hvernig getur fólk úr ólíkum kirkjudeildum með ólíkar skoðanir og áherslur unnið hlið við hlið að sameigninlegum verkefnum? Það getur verið erfitt! Sjálfur hef ég reynt það innan Youth with a mission og Ungs fólks með hlutverk. En hvaða grundvallarreglur þurfa menn að halda í heiðri þegar þeir vinna samkirkjulegt starf? Hér eru nokkrar:

  1. Allir sem þátt taka í samkirkjulegu starfi þurfa að vera sammála um hver séu kjarnaatriði kristinnar trúar. Þau atriði geta þeir síðan boðað og kennt sameiginlega, ágreiningslaust.
  2. Allar kristnar kirkjur hafa sín sérkenni, sérskoðanir og sér túlkanir á heilagri ritningu, sem ekki teljast til fyrrnefndra kjarnaatriða (í lið 1.). Þessi sérkenni, sérskoðanir eða túlkanir mega menn ekki undir neinum kringustæðum halda fram, kenna eða boða í samkirkjulegu starfi, hvorki beint né óbeint, hvorki í hópi né undir fjögur augu, nema um það sé sérstakt samkomulag allra aðila. Sé þessi regla brotin getur það auðveldlega valdið ágreiningi sem spillt getur samstarfinu. 
  3. Þegar margir ólíkir söfnuðir starfa saman á þennan hátt, er æskilegt að þeir starfi til skiptis í húsnæði hvers annars, en ekki alltaf í húsi sama safnaðar, því að í því felst óbein boðun sérkenna viðkomandi safnaðar (gegnum rit sem liggja frammi, myndir og annað á veggjum o.þ.h.).
  4. Hafi meðlimir tveggja eða fleiri kirkna áhuga á að starfa saman að einhverju viðfangsefni, þá er nauðsynlegt að þeir kynni hugmyndir sínar fyrir prestum viðkomandi safnaða, áður en farið er að móta hugmyndirnar ítarlega. Það gæti komið í veg fyrir mistök sem annars gæti verið erfitt að leiðrétta.
  5. Ef einhver söfnuður óskar eftir hjálp fólks úr öðrum söfnuði, sem hefur ólíkar kenningar, túlkanir og áherslur, þá ættu viðkomandi aðilar að ræða málið fyrst við prest hins safnaðarins, til þess að ekki komi upp óánægja og þeim presti finnist farið á bak við sig. Þetta er nauðsynleg kurteisi og virðing fyrir safnaðarleiðtogum, sem hafa hriðisábyrgð frá Drottni og ber skylda til að fylgjast með velferð "sauða" sinna. 
  6. Fólk úr ólíkum kirkjudeildum sem starfar saman verður að bera virðingu fyrir kenningum og kirkjusiðum hvers annars. Ef einn aðili í samstarfinu sýnir hinum þá lítilsvirðingu að telja sínar kenningar og aðferðir miklu betri en hins, þá er það óvirðing og særandi og getur eyðilagt gott samstarf.
  7. Fólki úr ólíkum söfnuðum sem starfar saman að samkirkjulegu starfi, er nauðsynlegt að rækja sinn eigin söfnuð samhliða hinu samkirkjulega starfi, ella getur það flosnað upp og komist á andlegan vergang. Maður þarf fyrst og fremst að rækja sitt eigið andlega heimili og vera því trúr og í framhaldi af því er síðan hægt að taka þátt í samkirkjulegu starfi, ekki öfugt. 
  8. Samkirkjulegt starf er viðbót við starf safnaðanna, en má aldrei koma í stað þeirra.

Það hefur gerst oftar en einu sinni, að söfnuður sem ætlar að standa fyrir einhveru í sínu eigin nafni, t.d. móti eða námskeiði, hefur talið það sjálfsagt að senda auglýsingar um atburðinn til annarra safnaða og fá þær birtar þar, án þess að fá leyfi hjá presti eða safnaðareiðtoga hins eða hinna safnaðanna. Þetta verða að teljast óeðlileg vinnubrögð. Annað á við ef um samkirkjulegt verkefni er að ræða sem prestar/forstöðumenn viðkomandi safnaða hafa komið sér saman um að vinna að (t.d Alfa-ráðstefna eða lofgjörðarnámskeið). Þá er fullkomlega eðlilegt að auglýsingar um atburðinn séu uppi í þeim kirkjum sem þátt taka í verkefninu. 

Þessar sjálfsögðu kurteisisreglur þarf að halda í heiðri til þess að koma í veg fyrir leiðindi og misskilning. Þó svo að ólíkir söfnuðir hafi viss tengsl sín á milli, t.d. með því að prestar þeirra og/eða forstöðumenn hittist af og til í þeim tilgangi að viðhalda vináttu og biðja saman, þá er ekki þar með sagt að um allsherjar samstarf milli þessara safnaða sé að ræða því eðlilegt að þeir sendi auglýsingar sín á milli um samkomur eða viðburði sem viðkomandi stendur fyrir um þær mundir. Slíkt samstarf er alls ekki nægilega náið til þess að þetta sé hægt eða æskilegt. Samstarf ólíkra safnaða verður að byggjast á gagnkvæmu trausti og virðingu fyrir ólíkum starfsaðferðum og kenningum auk góðrar reynslu af samstarfi þeirra. Meðan þessu marki hefur enn ekki verið náð og meðan enn er verið að vinna að því að skapa þetta viðhorf, verður allt auglýsingastarf og kynningarstarf yfir í herbúðir hvers annars að lúta þeim reglum að bera slíka hluti ávallt undir rétt kjörna forystumenn og ábyrga leiðtoga safnaðanna áður en umrædd auglýsing er hengd upp eða ráð fyrir því gert að hún verði hengd upp. Það eru réttar "umferðarreglur" í samkirkjulegu starfi og besta leiðin til að forðast misskilning og vonbrigði.



Friðrik Schram
 fridrik@kristur.is


Auglýsingar

Leturprent258X400


Póstlisti

Auglýsingar

Samhjálp

Auglýsingar

Kristilegt Félagsstarf
foglander_logo 
gralina


Toppmynd

antíkbudin

Stjórnborð

Stærra letur Minna letur Veftré Hafa samband RSS 2.0 straumar Hamur fyrir sjónskerta