Þú litla þjóð örvænt eigi, því lausnin kemur frá Drottni
Þjóð í kreppu
Eftir hina örlagríku haustdaga árið 2008 verður Ísland ekki eins á ný. Bankar Íslands urðu undir í efnahagskreppu heimsins. Margir sjá fram á erfiða tíma vegna þess að það er búið að fjötra þjóðina í skuldafeni. Upp hefur risið mikil reiði og hrópað var meðal annars "Vanhæf ríkisstjórn" þar til hún sagði af sér. Miðað við vandræðagang og ráðaleysi ráðamanna, er óvíst að þessi rödd sé búin að segja sitt síðasta. Fólk vill uppgjör við fortíðina og sjá réttlætinu framfylgt. Veröldin er öll í kreppu, Ísland er í vondum málum og þú getur verið í slæmum málum fjárhagslega. Eitt er víst að það er enginn kreppa í Guðsríkinu og Drottinn er ekki að fara á taugum yfir ástandinu. Hann er með áætlun, það er bara spurning hvort þú ætlir að vera með í henni?
Lausn sem dugði fyrir Rúanda
Mér er hugsað til Rúanda í Afríku sem gekk í gegnum mikla hörmungar árið 1994. Þegar Hútúar frömdu á þjóðarmorð á Tútsum og drápu nálægt milljón manns á 100 dögum. Eftir þjóðarmorðin var þjóðin í sárum og þurfti uppgjör við fortíðina. Margir af þeim sem fóru fyrir þjóðamorðunum voru handteknir og dæmdir í fangelsi. Stór hópur af þeim flýði til austur Kongó og hélt ódæðisverkum sínum áfram þar. En stærsti hópurinn var enn þá eftir í landinu og lifði á meðal Tútsana sem lifðu af þjóðarmorðin. Réttarkerfi Rúanda réð ekki við svo stórt verkefni að draga alla fyrir dómstóla vegna þjóðarmorðanna. Fyrir tilstuðlan hina kristnu í Rúanda komu Hútúar og Tútsar saman á stórum leikvangi þar sem unnið var að sáttargjörð á milli þessara ættbálka. Fulltrúi fyrir Hútúa baðst afsökunar á þjóðarmorðunum og fulltrúi fyrir Tútsa báðust afsökunar á því að hata Hútúana. Fyrirgefningin og sáttargjörðin voru stór skref fyrir endurreisn landsins og sem uppgjör við fortíðina. Ég hef komið nokkru sinnum til Rúanda og orðið vitni að því að Hútúar og Tútsar lifa hlið við hlið. Þeir sækja sömu kirkju og lofa Drottinn í einingu saman með fögnuði og þakklæti í hjarta. Þeir hafa reist upp nýtt Rúanda sem tala um eina Rúandaþjóð en skilgreina sig ekki lengur sem Tútsa eða Hútúa. Af Afríkuríkjunum er mesti hagvöxtur í Rúanda og Kigali höfuðborg landsins er sögð öruggasta borg Afríku.
Nýja Ísland með nýjum gildum
Ef Drottinn kom með lausn fyrirgefningar í svo miklum harmleik eins og hjá Rúanda, þá getur hann endurreist Ísland. Menn eru sammála um að græðgin hafi átt stóran hluta að máli að það fór svona fyrir landinu okkar. Því þarf algjöra hugarfarsbreytingu og ný gildi til að snúa við og endurreisa Ísland. Kristur skildi eftir fyrir okkur frábæran sannleika og góð gildi sem falla aldrei úr gildi. Heiðarleiki, auðmýkt, sáttargjörð og kærleikur eru ósigrandi lífsviðhorf ef við klæðum okkum með þeim, en aðeins í gegnum höfund lífsins Drottinn Jesú getum við íklæðst þessum góðum gildum. Í Stjórnarskrá Íslenska lýðveldisins eru æðstu lög landsins, sem öll önnur lög land okkar verða að hlíta, er lagður grunnur réttarheimildar til góðs siðferðis og góðra gilda.
Ísland kristinn þjóð í 1000 ár
Ísland hefur verið kristinn þjóð í meira en 1000 ár og þessi kristna arfleifð hefur mótað sögu okkar. Það var Þorgeir Ljósvetningargoði Þorkelsson lögsögumaður sem batt enda á deilu heiðinga og hina kristnu á Alþingi Íslendinga á Þingvöllum árið 1000. Hall Þorsteinsson (Síðu-Hall) var í forsvari fyrir hina kristnu og hann samdi við Þorgeir um að leggja fram lög sem allir gætu fellt sig við. Eins og frægt er orðið þegar Þorgeir hafði legið undir feld bauð hann mönnum að ganga til Lögbergis og þar hóf hann upp raust sína og kvað: „En nú þykir mér það ráð, að vér látim og eigi þá ráða, er mest vilja í gegn gangast, og miðlum svo mál á milli þeirra, að hvorirtveggju hafi nokkuð síns máls, og höfum allir ein lög og einn sið. Það mun verða satt, er vér slítum í sundur lögin, að vér munum slíta og friðinn."
Við það urðu Íslendinga að lögum kristnir og það má segja með sanni að Ísland hefur verið friðar ríki vegna þessar atburðar. Við höfum ekki átt okkar eigin her og hér hefur aldrei verið stríð og það er mikil blessun, góðir Íslendingar. Þessi kristna arfleið okkar hefur verið okkur til blessunar og góð lífsgildi falla aldrei úr gildi.
Íslendingar hafa verið mikil bókaþjóð í gegnum aldirnar. Nýja-testamentið var fyrsta bókin sem var prentuð á íslensku. Oddur Gottskálksson þýddi Guðs orðið úti í fjósi og kom það út þann 12. apríl 1540. Guðbrandsbiblía kom í kjölfarið sem fyrsta heildarútgáfa Biblíunnar á íslensku, prentuð á Hólum í Hjaltadal 1584 og kennd við Guðbrand Þorláksson biskup þar. Það hefur að margra mati varðveitt hina íslensku tungu okkar að hafa fengið þessar þýðingar á Guðsorði.
En það þarf meira til, að verða kristinn í hjarta sínu, en að hafa rykfallna Biblíu upp í hillu. Eins og Jesú sagði sjálfur: "Enginn getur séð Guðs ríki, nema hann fæðist að nýju" (Jóhannes 3:3). Það er ekki hægt að fæðast að nýju andlega talað nema með því að taka á móti Jesú Kristi inn í hjarta sitt. Þá byrjar nýtt upphaf fyrir þig og andleg endurfæðing á sér stað. Jesús kristur sem er Sannleikurinn mun valda byltingu í lífi þínu, en ávöxtur þess er meðal annars kærleikur, gleði og friður. Hvernig tekur þú á móti Jesú inn í líf þitt? Það er gert með einfaldri bæn, segðu í einlægni upphátt og með hjarta þínu: Fyrirgefðu mér allar syndir mínar, Drottinn Jesú. Ég trúi því að þú sért sonur Guðs sem dóst fyrir syndir mínar á krossinum og reist upp á þriðja degi. Ég tek á móti þér inn í hjarta mitt og trúi því að frá þessari stundu er ég Guðsbarn og ný sköpun í Kristi.
Hver er arfleifð okkar íslendinga og hvert er hlutverk Íslands í sögunni?
Við sjáum í gegnum söguna að þjóðir hafa risið og fallið. En sterk arfleifð þjóða hefur mótandi áhrif á framtíð þeirra. Íslendingar hafa verið mikil fiskveiðiþjóð, enda hefur það gert okkur meðal fremmstu þjóða á því sviði. Hér hefur búið friðsöm þjóð í gegnum aldirnar og því ekki algjör tilviljun að leiðtogafundur stórveldanna var hér á landi í Höfða sem markaði upphaf að endalokum kalda stríðsins og falli járntjaldsins.
Thor Thors sendiherra Íslands sem með framsöguræðu sinni 29. nóvember 1947 á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna opnaði leið fyrir kosningu um að skipta Palestínu í tvö sjálfstæð ríki og það gerði fæðingu Ísrael að veruleika á einu degi þann 14. maí 1948. Allsherjarþingið samþykkti, að Palestínu skyldi skipt í tvö sjálfstæð ríki, ríki Araba og ríki Gyðinga. Var sú samþykkt gerð með 33 atkvæðum gegn 13, en 10 sátu hjá. Ísland greiddi atkvæði með skiptingu landsins.
Guð gaf Abraham fyrirheit: „Ég mun gjöra þig að mikilli þjóð og blessa þig og gjöra nafn þitt mikið, og blessun skalt þú vera. Ég mun blessa þá sem þig blessa, en bölva þeim, sem þér formælir, og af þér skulu allar ættkvíslir blessun hljóta" (1. Mós. 12.2-3). Ef þetta fyrirheit er enn í fullu gildi, sem það er samkvæmt heilagri ritningu, þá mun engin manneskja, engin hópur fólks og engin þjóð nokkurn tíma geta ómerkt þessi blessunar orð Guðs. Eftir að Ísland veiti stofnun Ísraels brautargengi 1947 reis landið okkar úr fátæku bændasamfélagi og varð ein af ríkustu þjóðjum heims. Síðan þegar nýjar áherslur urðu hjá ríkisstjórn Íslands í afstöðu sinni til Ísraels, þá líður ekki á löngu þar til allt hrynur hér á Íslandi.
Ef Íslandi er ætlað að vinna stórt hlutverk við stórviðburði í framtíðinni, það þurfum við að vera með góð gildi og byrja á Alþingi með góðu fordæmi. Ísland er þekkt fyrir eld og ís sem getur staðið fyrir ljós og auðmýkt. Ef við sem þjóð eigum að verða til blessunar fyrir þjóðirnar og fyrir okkur sjálf þurfum við í auðmýkt að standa fyrir ljósi Guðs inn í hina myrkrvu veröld. Orð sannleika Guðs er eins og ljós sem brunar fram til þjóðanna sem frelsarinn kenndi í fjallræðunni um heiðarleika, hógværð, miskunnsemi, réttlæti og sáttargjörð. Er það kannski okkar hlutverk að sætta stríðandi fylkingar við Mið-Austurlönd?
Ég trúi því að Ísland sé kallað til að vera blessun fyrir þjóðirnar. Ísland á að vera höfuð en ekki hali í andlegum málum. Þegar Drottinn kallar einhverja þjóð er það til vinna eitthvað ákveðið verk og hann gefur líka allt sem þarf til þess að klára verkið. Ef við sem þjóð snúum okkur til Drottins og gjörum iðrun, þá mun hann græða landið okkar og lækna öll sár. Endurreisn Íslands verður þá sönn andleg vakning og útrásin verður til að miðla visku Guðs til þjóðanna.
Spádómar fyrir Íslandi
Margir spádómar hafa komið um Ísland síðustu ár frá mismunandi spámönnum frá öllum heimsálfum. Stór hluti af þessum spádómum hafa verið með eftirfarandi boðskap: Það er á leiðinni andleg bylting eða vakining sem mun fara eins og eldur út um allt land, bæ úr bæ, um alla strandlengju landsins. Þar til allt landið er einn eldur og því mun fylgja gleði, friður og lofgjörð til Drottins. Eldurinn mun fara út um allan heim frá Íslandi og landið mun verða þekkt fyrir lofgjörð til Drottins sem leysir fólk. Þessi litla þjóð mun verða eins og andlegur risi sem mun hafa áhrif á þjóðirnar. Vitjun Guðs mun koma með nýja sýn á lífsgildunum og þjóðirnar munu líta til Íslands sem fyrirmynd fyrir andlega vakningu og mikla blessun.
Þeir hefja upp raust sína og syngja fyrir hátign Drottins. Frá hafinu í vestri hrópa þeir hástöfum. Vegsamið þess vegna Drottin í landi eldanna, nafn Drottins, Ísraels guðs, á ströndum eyjanna. Frá ystu mörkum jarðarinnar heyrum vér lofsöngva: Dýrð sé hinum réttláta!
Þessi þjóð sem lofar Drottinn og lætur þakkargjörð hljóma innan um þjáningar heimsins, mun koma frá eyju í vesturhafi, í landi eldanna og er á ystu mörkum jarðarinnar, er tvímælalaust Ísland. Hér er áskorun til okkur allra að í stað þess að bölva skulum vér blessa.
Köllun Íslands að lofa Drottinn til að gefa lausn fyrir þjóðirnar?
Þegar Páll og Sílas voru húðstrýktir, settir í gapastokk og vistaðir í fangelsinu í Filippí hefði ekki verið upplagt að væla og kvarta (Postulasagan 16 kafli). Þeir fóru að syngja lofsöngva um Drottinn og það hrærði við hjarta Guðs. Á miðnætti varð landskjálfti og fjötranir féllu af föngunum og dyr fangelsins opnuðust. Þegar við lofum Drottinn mun þakklæti okkar opna dyr og leysa fjötra af okkur.
Meira að segja þjóðsöngur okkar Íslendinga er lofsöngur til Drottins. Ef þú veist ekki hvernig þú átt að lofa Guð, þá geturu byrjað á því að lyfta upp nafni Drottins með því að fara með þjóðsönginn okkar.
Ó, guð vors lands! Ó, lands vors guð! Vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn! Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans þínir herskarar, tímanna safn. Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár og þúsund ár dagur, ei meir: eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár, sem tilbiður guð sinn og deyr.
:; Íslands þúsund ár, ;: eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár, sem tilbiður guð sinn og deyr.
Ó, guð, ó, guð! Vér föllum fram og fórnum þér brennandi, brennandi sál, guð faðir, vor drottinn frá kyni til kyns, og vér kvökum vort helgasta mál. Vér kvökum og þökkum í þúsund ár, því þú ert vort einasta skjól. Vér kvökum og þökkum með titrandi tár, því þú tilbjóst vort forlagahjól.
:; Íslands þúsund ár, ;: voru morgunsins húmköldu, hrynjandi tár, sem hitna við skínandi sól.
Ó, guð vors lands! Ó, lands vors guð! Vér lifum sem blaktandi, blaktandi strá., Vér deyjum, ef þú ert ei ljós það og líf, sem að lyftir oss duftinu frá. Ó, vert þú hvern morgun vort ljúfasta líf, vor leiðtogi í daganna þraut og á kvöldin vor himneska hvíld og vor hlíf og vor hertogi á þjóðlífsins braut.
:; Íslands þúsund ár, ;: verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár, sem þroskast á guðsríkis braut.
Davíð sem varð konungur Ísraels um 1000 f. Krist gekk í gegnum miklar hrakfarir áður en hann tók við konungdómi. Hann þyrfti að flýja Sál konung út í eyðimörkina og faldi sig í helli með um 400 manns. Þessir sem voru með honum voru útkast Ísraels, óánægðir og í skuldum (hljómar eins og staða íslendinga). En eftir að hafa verið með Davíð, sem lofaði og leitaði stöðugt Guðs, urðu þeir hinir mestu kappar Davíðs og sumir uðru jafnvel jafnokar Davíðs. Þegar Davíð tók við völdum í Ísrael fór hann með sáttmálsörkina, sem er mynd upp á nærveru Guðs og lögmálið, inn í Jerúsalem. Hann setti bæna og lofgjörðar vaktir í tjaldbúð Davíðs þar sem örkin var staðsett. Þessi bæna og lofgjörðarstund í spámannlegum anda, sem var stöðug frammi fyrir örk Guðs, markaði upphaf af gullaldarskeiði fyrir Ísrael. Þegar Davíð afhenti arfleifðina til Salómons konungs, þá fékk Salómon allt sem hann þurfti til að byggja musterið utan um örk Drottins. Þegar Salómon hafði lokið við þetta dýrðlega musteri, sem var tíu sinnu stærra en tjaldbúð Móse, fyllti dýrð Drottins musterið svo enginn maður gat gengið inn.
Hið náttúrulega fyrirmyndar hið andlega, því þurfum við okkar andlegu Jerúsalem á Íslandi. Þar sem nærvera og dýrð Drottins verður fjötruð vegna þess að sannir tilbiðendur Drottins eru stöðugt á vaktinni. Árið 2006 var stofnað bænahús á Íslandi með það að markmiði að biðja fyrir Íslandi og láta lofgjörð hljóma frá Íslandi til Drottins. Bænahúsið hefur þá hugsjón að reisa bænahús þar sem allir hópar hinna kristnu geta átt tíma frammi fyrir Guði í lofgjörð og bæn. Sé nærvera Guðs dregin niður með lofgjörð okkar allann sólarhringinn mun það verða til mikillar blessunnar fyrir Íslensku þjóðina og sú blessun mun tvímælalaust ná út fyrir landsteinanna.
Náð Guðs er yfirfljótandi fyrir Ísland
Það sem allir eru í raun að leita af er náð. Náðin gefur okkur eitthvað sem við eigum ekki skilið. Náðin fyrirgefur allt og kemur stöðugt með nýja hluti inní líf okkar.
Náð á Grísku er charis og þýðir: "Guðleg áhrif á hjartað og endurspeglun þess í lífinu með þakklæti." Virk náð í lífum okkar nær inní innstu veru hjarta okkar. Síðan brýst hún út með mismunandi hætti í okkar tilfinningum, en allir finna nýja von og þakklæti. Þegar náðin nær tökum á hjarta okkar langar okkur öllum til að gera eitthvað fyrir Drottinn.
Við sjáum hve náðin er mikilvæg því Páll postuli notaði í upphafi og enda bréfa sinna kveðu sem þessa; "Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi." Postularnir Pétur og Jóhannes notuðu það líka í kveðjum sínum. Síðasta vers Biblíunnar er: "Náðin Drottins Jesú sé með öllum."
Vanþakklæti er í raun stærsta vandamálið í lífum okkar, það er að við teljum okkur eiga eitthvað betra skilið. Allar syndir mannsins eiga uppruna í vanþakklæti. Þakklæti mun klæða okkur dýrð Drottins og mun hræra hendi Guðs til að opna nýjar dyr. Þegar náðin og blóð Drottins verka í okkur fyllumst við þakklæti og lofgjörð, þá eigum við auðvelt með að biðja Drottinn um blessun og nýja náð.
Við eigum að vera þakklát fyrir allt líf, eins og Jesús er þakklátur fyrir allt líf. Ekki fyrirlíta hið smáa sem aðrir eiga eða það smáa sem Guð gefur okkur.
Matteusarguðspjall 12:20. Brákaðan reyr brýtur hann ekki, og rjúkandi hörkveik mun hann ekki slökkva, uns hann hefur leitt réttinn til sigurs.
Náð Guð er ný á hverjum degi og hún þrýtur ekki. Við getum gengið með djörfung að hásæti náðarinnar og fengið orð frá Guði sem gefur okkur kraft til að halda áfram að framfylgja köllun Guðs sem er á okkur sem einstaklingi og á okkur sem þjóð. Harmljóðin 3:22-23.
Náð Drottins er ekki þrotin, miskunn hans ekki á enda, hún er ný á hverjum morgni, mikil er trúfesti þín!
Örstutt saga frá Spáni af föður sem vildi fyrirgefa syni sínum. Sonur hans hafði hlaupist burt af heimili sínu í Madríd. Faðirinn setti auglýsingu í El Liberal dagblaðið svohljóðandi: Paco hittu mig á hótel Montana á þriðjudaginn kl. 12:00, það er allt fyrirgefið. Paco er vinsælt nafn á Spáni og þegar faðirinn fer á hótelið á settum tíma bíða um nokkur hundruð ungir drengir eftir föður sínum þar. Þessi stutta saga sýnir okkur berlega hve heitt við þráum náðina eða fyrirgefingu.
Síðasti hluturinn í tjaldbúð Móse var náðarstóllinn eða miskunnarstóllinn sem var í hinu allra heilagasta. Frá náðarstólnum talaði Guð til Ísraelsmanna og það er eins í dag. Þegar við meðtökum náð Guð með þakklæti, þá heyrum við blíða röddu Guðs tala inn í anda okkur og gefa okkur lykilinn að því hvernig við eigum að komast nær Honum.
Hebreabréfið 4:16 Göngum því með djörfung að hásæti náðarinnar, til þess að vér öðlumst miskunn og hljótum náð til hjálpar á hagkvæmum tíma.
Íslendingar látum ekki hugfallast á erfiðum stundum heldur sækjum fram og byggjum nýja Ísland með þakklæti í hjörtum vorum.
Náðin Drottins Jesú sé með öllum!
Kolbeinn Sigurðsson
forstöðumaður og trúboði Bænahúsins
Toppmynd







