Daggardropar
Hver vill ekki heyra í Guði?
Ef Guð talar til fólks þá vil ég vera ein af þeim sem heyra hann tala. Ég veit ekki með þig, en ég bið Guð daglega um að mega heyra þegar hann talar. Það er nefnilega eitthvað spennandi við að geta átt samskipti við Guð. Það er hægt að heyra Guð tala á ýmsan hátt. Ein leiðin er að lesa í Nýja testamentinu hvað Jesú hafði að segja við samtíðarmenn sína, orð sem eru enn í gildi og menn vitna jafnvel oft til án þess að hafa hugmynd um hvaðan þau eru sprottin. Biblían er kölluð Orð Guðs vegna þess að hún talar til okkar enn í dag. En það er fleira sem getur talað til okkar en orð Guðs. Í Biblíunni segir að rödd syndarinnar tali til hjarta þess sem er guðlaus. Ef þú vilt fá leiðsögn í daglegu lífi þínu, leiðsögn sem verður þér alltaf til góðs, þá skaltu biðja Guð að fylla hjarta þitt af anda sínum, þú þarft á því að halda.
Þegar Jesús hafði verið krossfestur og var horfinn lærisveinum sínum þá þurftu þeir að halda áfram að lifa lífinu rétt eins og ég og þú. Munurinn á okkur og þeim er sá að sumir þeirra höfðu séð hann upprisinn og áttu þess vegna ekki í neinum vandræðum með að treysta því að hann væri með þeim á hverjum degi. En þeir áttu eitthvað meira en þá fullvissu. Þegar við lesum Postulasöguna sést greinilega að lærisveinarnir heyrðu þegar Guð talaði.
Í 13.kafla Postulasögunnar segir til dæmis: ,,Eitt sinn er þeir voru að þjóna Drottni og föstuðu sagði heilagur andi: Skiljið frá mér til handa þá Barnabas og Sál til þess verks sem ég hef kallað þá til."
Þegar Guð talar til manns fyrir munn annarra þá er það oft staðfesting á því sem Guð hefur þegar sagt manni sjálfum í einrúmi. Ég heyrði einu sinni sagt frá því að ungur maður hafi farið til konu sem hann var hrifinn af og sagt henni að Guð hefði sagt sér að hún ætti að verða konan sín. Konan, sem var ekki vitund hrifin af manninum svaraði því til að fyrst Guð hefði talað til hans þá myndi hann ábyggilega tala við sig líka! Rödd Guðs má aldrei reyna að nota sem stjórntæki, það endar bara með ósköpum. En ef við þurfum á því að halda að fá staðfestingu á því að hafa heyrt rétt þá fáum við hana. Guð hafði eflaust talað áður við Barnabas og Sál og kallað þá til ákveðinna starfa og þeir beðið rétta tímans sem þarna rann upp. Guð þráir að eiga samfélag við okkur og þegar við tökum okkur tíma til að lesa Guðs orð og biðja eða eiga hljóða stund þá þjálfum við hjarta okkar og skynfæri til að hlusta á Guð. Að heyra Guð tala er næring fyrir sál okkar og anda. Fyrir allmörgum árum talaði Guð til kvenna í Bandaríkjunum um að stofna samtök kristinna kvenna sem nefnast Aglow. Þessar örfáu konur höfðu ekki hugmynd um hvað Guð hafði í huga með þessi samtök. Þessi hugmynd var ekki eingöngu gefin bandarískum konum heldur heiminum öllum og áður en langt um leið fóru Aglowsamtökin að breiðast út um heiminn. Í dag starfa þau í um það bil 170 löndum.
Allt sem af Guði er fætt sigrar heiminn og þegar við fáum innblástur frá Guði og fylgjum honum eftir þá ganga hlutirnir vel. Guð hefur áætlun með landið okkar og þú ert hluti af þeirri áætlun. Það eru margir á meðal okkar sem eru einmana og sjá engan tilgang með lífinu. Sumar þeirra setja upp ákveðna grímu í samskiptum sínum við aðra og láta líta út sem allt gangi vel þótt það geri það alls ekki. Guð vill ná til þessa fólks og þú getur örugglega hjálpað einhverju þeirra. Guð gefi að þú hlustir þegar hann talar.
Dögg Harðardóttir Hjúkrunardeildarstjóri 14. júlí 2009
Toppmynd






