Beint á leiðarkerfi vefsins

Haltu vöku þinni

Það var einu sinni prestur sem tók eftir því að meðhjálparinn svaf alltaf undir ræðunni hans, en ef gestaprédikari kom í kirkjuna þá vakti meðhjálparinn og hlustaði. Einn daginn ákvað presturinn að ræða þetta mál við meðhjálparann og fann að því við hann að hann svæfi alltaf undir ræðunum. Meðhjálparinn var ekki lengi að bjarga sér fyrir horn því að hann sagði: „Þú verður að athuga það að ég þekki þig svo vel að ég veit að mér er óhætt að treysta því að þú farir rétt með Guðs orð, en þegar það koma gestir þá verð ég að vaka og hlusta svo menn fari ekki með neina vitleysu. "

Eitt sinn komst unglingur á spjöld sögunnar fyrir að sofna undir ræðu Páls postula. Ég skil það mjög vel. Það er stundum sagt að unglingar þurfi mikinn svefn. Ég held að það stafi oft af því hversu spennandi þeim finnst að fara seint að sofa og hversu lítið mál það virðist vera að sofa bara einhvern tímann seinna. Svo er auðvitað mjög mikilvægt að missa ekki af neinu þegar maður er unglingur. Það er þess vegna mjög skiljanlegt að unglingurinn hafi orðið syfjaður. Það var hins vegar verra að hann skyldi hafa komið sér fyrir úti í glugga. Það hefði haft minni afleiðingar fyrir hann ef hann hefði bara setið á gólfinu.

Í 20. kafla Postulasögunnar er sagt frá því að Páll postuli hafi haldið langa ræðu sem ég trúi reyndar alveg því að þegar ég les bréfin sem hann skrifaði í Nýja testamentinu þá átti hann yfirleitt eftir að tala lengi eftir að hafa sagt: „Að lokum... "

Hann Evtýkus, unglingurinn, sat í glugga og sofnaði. Hvort hann hafði sofið lengi í glugganum vitum við ekki, en hann féll sofandi úr glugganum niður á gólf, af þriðja lofti eins og það er orðað. Fólkið sem var viðstatt fékk áfall þegar drengurinn datt úr glugganum og enn verra hefur það verið að heyra hann skella á hörðu gólfinu án þess að geta nokkuð við því gert. Mönnum var mjög brugðið því að þeir héldu að drengurinn væri dáinn, enda margur látist eftir fall úr minni hæð. Eflaust hafa foreldrar hans verið á staðnum, ættingjar og vinir. Á þessum árum var ekki hægt að hringja í sjúkrabíl, eins og við hefðum gert, og enginn akkur í að flytja drenginn burt af staðnum. En fólkinu létti þegar það komst að því að drengurinn lifði af og Guði var þakkað. Þetta var um miðnætti. Einhver skyldi nú ætla að þetta atvik hefði stytt eitthvað ræðu Páls, en hann hélt ótrauður áfram og talaði til morguns. Það er umhugsunarvert að fólkið hélt kyrru fyrir og hlustaði á Pál svo lengi.

Einu sinni var erlendur prédikari gestur í íslenskri kirkju og átti að tala á samkomu sem hófst klukkan átta. Maðurinn spurði hversu lengi hann mætti tala og fékk þá þetta svar: „Þú mátt tala eins lengi og þú vilt, en við förum klukkan tíu." Áheyrendur Páls postula voru kurteisari og hlustuðu þangað til hann hafði lokið máli sínu. Ég tel að fólkið hafi fundið fyrir nærveru Guðs og þess vegna kosið að vera um kyrrt. Ég veit ekki með þig, en þegar ég fer í kirkju þar sem heilagur andi virðist allt að því áþreifanlegur, þá langar mig ekki til að yfirgefa nærveru hans. Kristilegar samkomur verða eftirsóttar ef fólkið sem sækir þær finnur að andi Guðs er til staðar. Ræður verða ekki betri því lengri sem þær eru. Það sem skiptir máli er að ræðumaðurinn hafi Guð með sér. Ritningin segir okkur að fólk hafi hópast að Jóhannesi skírara. Eftir lýsingum að dæma var Jóhannes vægast sagt einkennilegur útlits. En það var ekki útlitið sem fólkið laðaðist að heldur nærvera Guðs. Jóhannes hafði eytt tíma í nærveru Guðs og fólkið fann það. Á göngunni með Guði skiptir máli að halda vöku sinni og gera trúna aldrei að innihaldslitlum vana. Ef þú finnur að trúarlíf þitt er staðnað þá skaltu biðja Guð að gefa þér aftur eldinn sem þú varst knúinn af. Þannig finnur þú nýjan tilgang með lífinu og samferðarmenn þínir finna að það er gott að dvelja í návist þinni.

Dögg Harðardóttir
Hjúkrunarfræðingur 19. júlí 2009


Auglýsingar

Leturprent258X400


Póstlisti

Auglýsingar

Samhjálp

Auglýsingar

Kristilegt Félagsstarf
foglander_logo 
gralina


Toppmynd

antíkbudin

Stjórnborð

Stærra letur Minna letur Veftré Hafa samband RSS 2.0 straumar Hamur fyrir sjónskerta