Beint á leiðarkerfi vefsins

Að vera vinur

Það sagði eitt sinn maður um vináttuna: Besti vinur okkar er sá sem þekkir alla okkar galla og er samt vinur okkar.

Þessi orð komu í huga minn þegar ég var að hugsa um postulann Pétur sem afneitaði Jesú þrisvar eftir að Jesús hafði verið handtekinn. Samt var Pétur einn af bestu vinum Jesú. Hvernig fór hann að þessu?

Ef við skoðum söguna aðeins nánar þá átti þessi afneitun sér aðdraganda.

Eftir síðustu kvöldmáltíðina fór Jesús í garðinn Getsemane til að biðjast fyrir. Hann tók með sér þrjá bestu vini sína þá Pétur, Jakob og Jóhannes.

Í þessum garði háði Jesús gríðarlega bænabaráttu. Hann vissi hvað var framundan og vildi hafa vini sína hjá sér. Og hann bað þá að vaka með sér og biðja. Jesús fór spölkorn í burtu frá þeim til bæna og þegar hann kom aftur til þeirra, eflaust til að finna að hann stæði ekki einn, hann ætti vini sem stæðu með honum, þá voru þeir ekki biðjandi heldur sofandi. Þetta endurtók sig þrisvar þrátt fyrir hvatningu Jesú að þeir myndu vaka og biðja. Pétur hefur eflaust ekki verið stoltur af sjálfum sér að bregðast svona vini sínum á ögurstundu.

Á meðan þeir voru enn í garðinum kom Júdas Ískaríot og flokkur hermanna með honum til að handtaka Jesú. Þegar Pétur sá hvað verða vildi tók hann sverðið sitt og hjó eyrað af þjóni æðsta prestsins. Pétur ætlaði ekki að láta handtaka Jesú baráttulaust og hann ætlaði ekki að bregðast honum aftur sama kvöldið. Jesús var vinur hans og hann ætlaði að standa með honum. En þá gerði Jesús það sem Pétur átti alls ekki von á. Hann tók fram fyrir hendurnar á honum. Hann sagði Pétri í raun að Pétur væri að gera önnur mistök og svo kórónaði hann þetta með því að lækna þjóninn. Og skilaboðin sem Pétur fékk frá Jesú voru: ´Pétur, svona gerir maður ekki. Maður særir hvorki vini sína né óvini.´ Og Pétur hefur setið uppi með skömm. Góðu fréttirnar fyrir okkur eru að Jesús græddi sárið sem vinur hans olli. Jesús læknar sárin sem vinir hans valda.

Ef við erum ærleg við okkur sjálf þá hljótum við að viðurkenna að stundum höfum við komið klaufalega fram við aðra og jafnvel sært þá. Og kannski hafa aðrir sært okkur. En góðu fréttirnar eru þær að Jesús læknar sárin sem vinir hans valda. Hann læknar ekki bara sárin sem vinir hans valda vinum sínum, heldur líka sárin sem vinir hans valda andstæðingum sínum. Því að Jesús vill ekki að vinir sínir særi einn né neinn. Hann kom til að gera okkur heil og vill að við séum heil. Í Getsemane læknaði Jesús óvin sinn. Og fyrst hann læknaði óvin sinn hve miklu frekar vill hann þá ekki lækna vini sína. Ef þú hefur verið særður þá vill Jesús lækna þig. Það tekur hann örskamma stund. Eins snerting og við verðum heil. En þú verður að leyfa honum það. Þjónn æðsta prestsins hefði getað komið í veg fyrir að Jesús læknaði sig. Hann hefði getað valið að minnast þess alla tíð sem Pétur gerði honum og bera merki þess á líkama sínum, en hann þáði lækninguna. Og með tíð og tíma gleymdi hann Pétri og sárinu sem hann olli. Þannig er það líka með okkur. Þegar Jesús læknar sárin þá gróa þau þannig að við erum ekki minnt á þau lengur og við gleymum með tíð og tíma því sem vinir okkar gerðu okkur.

Eftir að postulinn Pétur svaf í Getsemane í stað þess að biðja og eftir að hafa höggvið eyrað af þjóni æðsta prestsins og verið snupraður fyrir

er þá ekki skiljanlegt að hann hafi skort kjark til að játa að hann þekkti Jesú? Hann hafði gert tvenn mistök og var brotinn innra með sér. Þessi kraftmikli maður, sem var alltaf fullur af eldmóði hann varð allt í einu hræddur þegar þjónustustúlka spurði jafn einfaldrar spurningar og hvort hann þekkti Jesú. Það hafði tvisvar verið sett ofan í við hann sama kvöldið og það var honum nóg. Og er nokkur furða að hann hafi gengið út og grátið beisklega eftir að hafa afneitað Jesú þrisvar. Besta vini sínum. Mistökin sem við gerum, gerum við oft á okkar döprustu stundum. En er þá ekki gott að vita að besti vinur okkar er sá sem þekkir alla okkar galla og er samt vinur okkar. Þannig vinur er Jesús.

Þegar Jesús birtist lærisveinum sínum upprisinn, þá spurði hann Pétur þrisvar hvort hann elskaði sig. Pétur hafði brugðist Jesú á þrennan hátt síðasta kvöldið sem þeir eyddu saman. Var það tilviljun að Jesús skildi spyrja hann þrisvar?



Póstlisti

Auglýsingar

hjalpast_kirkjunnar

Auglýsingar

Kristilegt Félagsstarf
foglander_logo 
gralina


Toppmynd

antíkbudin

Stjórnborð

Stærra letur Minna letur Veftré Hafa samband RSS 2.0 straumar Hamur fyrir sjónskerta