Beint á leiðarkerfi vefsins

Að vera maður sjálfur

Í Postulasögunni er sagt frá manni sem hét Símon og var töframaður. Fólkið flykktist um hann því að hann hafði lengi heillað það með töfrum. Þessum manni er ekki lýst nákvæmlega en þó eru þessi orð sögð um hann: Hann þóttist vera næsta mikill. Þessi orð láta ekki mikið yfir sér, en segja því meira.

Í gegnum aldirnar hefur alltaf verið til fólk sem þykist vera eitthvað annað en það er. Í þeim heimi sem við lifum í er ekki alltaf auðvelt að koma til dyranna eins og maður er klæddur. Hver kannast ekki við að hafa verið spurður: „Ertu ekki hress?" Og þú svarar bara: „Jú, jú" án þess að hugsa þig um. Jafnvel þótt þú sért alls ekki hress.

Ef yfirborðsmennskan nær undirtökunum í lífinu þá líður okkur ekki vel. Við getum sett upp ákveðna grímu í samskiptum okkar við annað fólk og við getum stundað ákveðinn leikaraskap í langan tíma, en það er einn sem við blekkjum aldrei. Guð þekkir hjarta okkar. Hann veit hvað inni fyrir býr. Hann elskar okkur og vill hjálpa okkur.

Eitt sinni heyrði ég sögu um mann sem er í dag prestur í stærstu fríkirkju í heimi. Þessi kirkja er í Suður-Kóreu, hún hefur um eina milljón meðlimi og presturinn heitir Youngi Cho. Youngi Cho hlaut ekki prestsvígslu í þessari kirkju þegar hún var orðin nokkuð fjölmenn. Hann stofnaði kirkjuna. Saga þessa manns er um margt merkileg. Þegar hann var ungur maður, nýlega brautskráður úr Biblíuskóla þá langaði hann, eins og svo marga aðra, til að ná árangri í lífi sínu. Og þar sem hann hafði valið guðfræðina að sínum vettvangi þá valdi hann sér Billy Graham að fyrirmynd. Það var mjög skiljanlegt því að Billy Graham var einn þekktasti prédikari tuttugustu aldarinnar og fólk tók trú á Jesú Krist við að hlusta á ræðurnar hans. Youngi Cho ákvað því að rannsaka vandlega hvernig Billy Graham færi að í þeim tilgangi að gera eins. Þegar Youngi Cho prédikaði þá fór hann að nota sömu áherslur og Billy Graham. Hann hreyfði sig eins, bretti upp ermarnar á sama hátt, lagaði gleraugun eins og Billy Graham og bar sig að í ræðupúltinu nákvæmlega eins og Billy Graham. Gallinn var bara sá að Yongi Cho var ekki hann sjálfur. Og eftir nokkrar vikur varð hann svo þreyttur, bæði líkamlega og andlega, að hann hélt að hann væri á rangri hillu í lífinu. Og hann sagði við Drottin: „Mér þykir það leitt, en ég get bara ekki starfað fyrir þig lengur. Ég hélt að þetta væri það sem þú ætlaðir mér en ég hafði á röngu að standa." Og Youngi Cho var niðurbrotinn maður. En það var einmitt þá sem Drottinn komst að. Þegar Youngi Cho lagði niður allar varnirnar og allan leikaraskapinn kom Drottinn til hans og sagði: „Barnið mitt. Ég þarf bara einn Billy Graham. En ég þarf líka einn Youngi Cho. Hættu að herma eftir Billy Graham og vertu þú sjálfur." Og Youngi Cho hlýddi. Þegar hann hlýddi, þegar hann fór að sætta sig við að Guð elskaði hann eins og hann væri og fór að trúa því að Guð gæti notað einmitt hann, þá fór honum að ganga vel. Í 1. Korintubréfi 9. kafla segir: „Hver ert þú maður að þú skulir deila á Guð? Hvort mundi smíðisgripurinn segja við smiðinn: ´Hví gjörðir þú mig svona?´ Eða hefur ekki leirkerasmiðurinn leirinn á valdi sínu...?" Guð gerði þig eins og þú ert. Og hvað sem þér finnst um þig þá elskar Guð þig. Hann getur tekið burt gallana í fari þínu, en það hefst allt með því að þú komir til hans eins og þú ert. Ekki með neina uppgerð, enga sýndarmennsku, engan leikaraskap. Ef þú getur alltaf gert allt í eigin mætti þá þarftu aldrei á Guði að halda. En ef þú finnur til smæðar þinnar. Ef þú lítur ekki stórt á þig heldur skynjar að þú sért ekki fullkominn þá kemst Guð að því að máttur hans fullkomnast í veikleika þínum. Eða eins og Páll postuli orðaði það: „Þegar ég er veikur, þá er ég máttugur."

Biðjum: Faðir. Þakka þér fyrir að þú gerðir okkur eins og við erum. Viltu hjálpa okkur að vera við sjálf, án uppgerðar, án leikaraskaps. Hjálpaðu okkur að vera einlæg og sætta okkur við okkur sjálf eins og við erum. Í Jesú nafni, amen.


Póstlisti

Auglýsingar

Samhjálp

Auglýsingar

Kristilegt Félagsstarf
foglander_logo 
gralina


Toppmynd

antíkbudin

Stjórnborð

Stærra letur Minna letur Veftré Hafa samband RSS 2.0 straumar Hamur fyrir sjónskerta